
Freyja
Freyja ehf. er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi, stofnuð umbrotaárið 1918. Freyja er sælgætisgerð Íslendinga og framleiðir söguleg sælgæti undir nokkrum af ástsælustu vörumerkjum landsins sem eru Rís, Draumur, Djúpur, Mix og Freyju súkkulaði. Eftir meira en heila öld af sælgætisframleiðslu endurspeglar saga og andi Freyju þjóðaranda Íslendinga sem einkennist af íslenskri bjartsýni.
Bragð og gæði eru höfð í hávegum hjá Freyju, það er öllum fimmtíu starfsmönnum félagsins kappsmál að framleiða og markaðssetja sælgæti sem kallar fram bragðgóðar íslenskar minningar. Hvort sem það er fyrir íslenskan markað eða til útflutnings þar sem sælgætið frá Freyju er í stöðugri sókn.
Nýsköpun og vöruþróun Freyju er ætluð að stuðla að varanlegum vexti og er það markmið að vörunýjungar verði hluti af fleiri gleðistundum, skemmtilegum hefðum og góðum minningum hjá þjóðinni.

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja óskar eftir að ráða tæknimann í fjölbreytt og krefjandi starf hjá stóru og rótgrónu framleiðslufyrirtæki. Hér er um að ræða mikilvægt hlutverk í daglegum rekstri þar sem reynsla, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum skipta miklu máli.
Menntun í rafiðngreinum eða sambærileg menntun er skilyrði.
Freyja er dótturfélag Langasjávar ehf. Félög í samstæðunni sérhæfa sig í framleiðslu og dreifingu á matvælum. Fyrirtækið vinnur markvisst að jafnréttismálum og stuðlar að vexti starfsmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri og viðhaldi, þar með talið stillingum og viðgerðum á framleiðslu- og pökkunarvélum og öðrum tækjum.
- Uppsetning viðhaldsáætlunar og umsjón með henni
- Umsjón með framþróun tæknibúnaðar og húsnæðis
- Annast önnur verkefni sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmönnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla á rafmagns- og/eða vélasviði t.d. rafvirkjun, rafiðnfræði, vélfræði
- Þekking á viðhaldi búnaðar; véla-, vökva- og rafkerfa.
- Reynsla af iðntölvum, sjálfvirkni og upplýsingatækni er kostur
- Reynsla af uppsetningu og notkun á viðhaldsáætlunum er kostur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kársnesbraut 104, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður / Technician
Icelandic Glacial

Kælivélamaður / Vélfræðingur
Hitastýring hf.

Vanir véla- og verkamenn óskast til starfa
GH Grétarsson ehf

Véla- og tækjavörður
Tækniskólinn

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab
Textílmiðstöð Íslands

Óskum eftir vélvirkja
Trefjar ehf

Stálvilji ehf óskar eftir vélvirkja eða stálsmið í framtíðarstarf
Stálvilji ehf

Production Specialist - Electric
DTE

TÆKNIMAÐUR Í TÆKNIDEILD BVT
Bako Verslunartækni

Tæknimaður – rafvirki
Enercon

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur