AÞ-Þrif ehf.
AÞ-Þrif ehf.
AÞ-Þrif ehf.

Þjónustustjóri Sérverkefna

AÞ-Þrif leitar að öflugum og skipulögðum þjónustustjóra til að leiða daglegan rekstur sérverkefna.

Ert þú sterkur leiðtogi sem hefur gaman af því að skipuleggja, leysa áskoranir og ná árangri með fólki?

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur metnað fyrir framúrskarandi þjónustu, skilvirkum rekstri og góðri liðsheild.

Sem þjónustustjóri sérverkefna gegnir þú lykilhlutverki í daglegum rekstri, skipulagningu verkefna og stýringu starfsfólks. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem nýtur þess að vinna í kraftmiklu umhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun, skipulagning og eftirfylgni sérverkefna.
  • Mannaflastýring og skipulagning verkefna
  • Stýring verkefna og stuðningur við verkstjóra og starfsfólk.
  • Umsjón með daglegum fundum og trygging á skilvirku upplýsingaflæði.
  • Eftirfylgni með framvindu, gæðum og hagkvæmni verkefna.
  • Þátttaka í tilboðsgerð, verkbeiðnum og uppgjöri verkefna.
  • Ábyrgð á nýtingu mannafla, tímaskráningum og daglegum rekstrarmálum.
  • Þátttaka í ráðningum, starfsmannamálum og starfsþróun í samstarfi við mannauðssvið.
  • Skipulagning þjálfunar og fræðslu starfsfólks í samstarfi við mannauðssvið.
  • Náið samstarf við viðskiptastjóra og aðra stjórnendur til að tryggja framúrskarandi þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af stjórnun starfsfólks og daglegum rekstri.
  • Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni.
  • Sterk leiðtogahæfni og geta til að hvetja og leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks.
  • Sjálfstæð, ábyrg og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Góð rekstrarvitund og hæfni til að forgangsraða verkefnum.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og geta til að takast á við fjölbreyttar áskoranir.
  • Frábær almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Ökuréttindi.

Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af verkefnastjórnun, þjónusturekstri eða sambærilegu starfsumhverfi er kostur.

Auglýsing birt15. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skeiðarás 12, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar