GoPro
GoPro
GoPro

Fjármálastjóri

GoPro leitar að öflugum fjármálastjóra til að taka við lykilhlutverki í rekstri og áframhaldandi þróun GoPro og dótturfélaganna Hugvits og Canalix.

Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjármálastjórn GoPro, Hugvits og Canalix en hlutverkið er talsvert breiðara en hefðbundið fjármálastjórastarf.

Viðkomandi vinnur náið með stjórnendum og stjórn GoPro, framkvæmdastjórum Hugvits og Canalix, stjórnum félaganna og er mikilvægur viðskipta- og rekstrarlegur samstarfsaðili stjórnenda.

Nýr fjármálastjóri tekur við af fjármálastjóra sem hefur starfað hjá félaginu í yfir 30 ár og lætur af störfum vegna aldurs. Viðkomandi verður starfsmaður GoPro og gegnir jafnframt hlutverki fjármálastjóra fyrir Hugvit og Canalix.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með fjármálum, uppgjöri og fjárhagslegri stöðu félaganna.
  • Fjárhags- og rekstraráætlanir, spár, greiningar og eftirfylgni.
  • Þróun stjórnendaupplýsinga og lykilmælikvarða fyrir stjórnendur og stjórnir.
  • Yfirumsjón með bókhaldi, en sérstakur starfsmaður sinnir daglegu bókhaldi og bókunum.
  • Eftirlit með tekjum, kostnaði, sjóðstreymi og afkomu.
  • Yfirumsjón með launagreiðslum og sameiginlegum starfsmannamálum.
  • Virk þátttaka í mannaflaáætlunum og úthlutun starfsmanna og annarra auðlinda á verkefni.
  • Eftirfylgni með nýtingu, kostnaði og afkomu verkefna.
  • Virk þátttaka í stærri samningum, útboðum og tilboðum á Íslandi og erlendis, meðal annars varðandi verðlagningu, fjárhagslíkön, arðsemi og áhættumat.
  • Samskipti við endurskoðendur, banka og ytri ráðgjafa í þeim löndum þar sem félögin starfa.
  • Áframhaldandi einföldun og samræming fjármála- og rekstrarferla.
  • Virk nýting upplýsingakerfa, gagna, sjálfvirkni og AI til að bæta fjármálastjórn, greiningu og rekstur.

Hverjum erum við að leita að?

Við leitum að reyndum fjármála- og rekstrarstjórnanda sem hefur sterkan fjármálabakgrunn en vill jafnframt taka virkan þátt í rekstri og þróun fyrirtækisins.

Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á fjármálastjórnun, uppgjöri, áætlanagerð og stjórnendaupplýsingum og geta unnið bæði með heildarmyndina og einstök verkefni.

Mjög góð enska, bæði töluð og rituð, er skilyrði. Starfið felur í sér dagleg samskipti og samstarf við starfsfólk, stjórnendur, viðskiptavini og samstarfsaðila í mörgum löndum.

Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem:

  • Er sterkur í greiningu og hefur góðan viðskiptaskilning.
  • Er sjálfstæður, skipulagður og traustur.
  • Getur verið öflugur samstarfsaðili framkvæmdastjóra og annarra stjórnenda.
  • Er tæknisinnaður og hefur áhuga á nýtingu AI, sjálfvirkni og gagna.
  • Á auðvelt með að vinna með dreifðum teymum og fólki af ólíkum menningar- og faglegum bakgrunni.
  • Hefur áhuga á að einfalda ferla og bæta rekstur fremur en að viðhalda óbreyttum vinnubrögðum.

Reynsla af alþjóðlegum rekstri, hugbúnaðar- eða tæknifyrirtæki, verkefnadrifnum rekstri, mannafla- og auðlindastýringu eða stærri samningum og útboðum er mikill kostur.

Tækifærið:

Þetta er lykilstaða hjá rótgrónu íslensku hugbúnaðarfyrirtæki með alþjóðlega starfsemi og sterkan og reynslumikinn starfsmannahóp.

Nýr fjármálastjóri tekur við vel mótuðu hlutverki af fjármálastjóra sem hefur starfað hjá félaginu í yfir þrjá áratugi, en fær jafnframt tækifæri til að móta næsta skeið í fjármálastjórnun og rekstrarumgjörð GoPro, Hugvits og Canalix.

Leitað er að einstaklingi sem vill vera meira en hefðbundinn fjármálastjóri og taka virkan þátt í rekstri, alþjóðlegri starfsemi, tækniþróun, auðlindanýtingu og mikilvægum viðskiptaákvörðunum félaganna.

GoPro og dótturfélög þess eru alþjóðleg hugbúnaðarfyrirtæki með starfsemi, starfsfólk, viðskiptavini og verkefni í fjölmörgum Evrópulöndum. Stærstu starfsstöðvarnar eru á Íslandi og í Sofíu í Búlgaríu, auk þess sem starfsmenn eru staðsettir í Þýskalandi, Bretlandi, Danmörku, Sviss, Spáni og Ítalíu.

Hjá félögunum starfar sterkur og reynslumikill hópur sérfræðinga og stjórnenda og starfsaldur er almennt langur. Mikil þekking hefur byggst upp innan fyrirtækisins á lausnum þess, viðskiptavinum og þeim mörkuðum sem félögin starfa á.

Starfsemin er mjög tæknivædd og byggir að verulegu leyti á fjarvinnu og verkefnavinnu þvert á lönd. Öflug upplýsingakerfi styðja reksturinn og lögð er áhersla á áframhaldandi nýtingu gagna, sjálfvirkni og gervigreindar (AI) til að einfalda ferla, bæta yfirsýn og auka skilvirkni.

Horn IV er stærsti einstaki hluthafi GoPro ásamt stofnendum og öðrum hluthöfum sem jafnframt eiga fulltrúa í stjórn félagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 28. október nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]).

Auglýsing birt14. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Tunguháls 19, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjálfvirknivæðingPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar