Vínbúðin
Vínbúðin
Vínbúðin

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa

Við leitum að framsæknum og metnaðarfullum aðila til að ganga til lið við öflugan hóp starfsfólks ÁTVR. Vöruval og innkaup ber ábyrgð á vörusafni og vöruvali Vínbúða ásamt því að stýra vöruflæði til þeirra í takt við eftirspurn viðskiptavina.

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa leiðir þróun vöruvals og ber ábyrgð innkaupum og birgðastýringu. Við leitum að leiðtoga sem hefur hæfni til að leiða og hvetja teymi til árangurs. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi búi yfir góðri samskiptafærni og eigi auðvelt með að byggja upp árangursríkt samstarf við fjölbreyttan hóp samstarfsfólks og viðskiptavina. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri greiningarhæfni og eiga auðvelt með að greina tækifæri til umbóta.

Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra vöruvals og innkaupa.


Verkefni og ábyrgð

  • Leiða og styðja við teymi vöruvals og innkaupa
  • Stýra umbótaverkefnum og stuðla að skilvirki þróun
  • Mótun reglna í samræmi við stefnu og framkvæmd vöruvals
  • Ber ábyrgð á innkaupum í samræmi við stefnu og markmið fyrirtækisins
  • Ber ábyrgð á birgðastýringu til Dreifingarmiðstöðvar og Vínbúða
  • Ber ábyrgð á samskiptum, samningum og upplýsingagjöf til birgja
  • Hefur yfirumsjón með gæðamálum og úrlausnum frávika
  • Leiða skynmat, rannsóknir og fræðslu á sviði vöruþekkingar
  • Ber ábyrgð á vöruskráningu og greiningu á söluárangri
  • Sinnir greiningu og áætlanagerð
  • Þjónusta og samskipti við innri og ytri viðskiptavini
  • Lögfræðileg verkefni tengt vöruvali og innkaupum


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • A.m.k. 3 ára reynsla af sambærilegu starfi
  • Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
  • Reynsla af umbótaverkefnum og vilji til að leiða umbætur
  • Rík þjónustulund, mjög gott viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mikil hæfni við gagnaúrvinnslu og greiningar
  • Hæfni til að miðla upplýsingum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Mjög góð tölvukunnátta, reynsla og þekking á BC er kostur.


Frekari upplýsingar um starfið

Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2026.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á www.vinbudin.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected].

ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stuðlaháls 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar