Ásar
Ásar
Ásar

Forstöðumaður reikningshalds

Ásar hf. leita að öflugum og reynslumiklum forstöðumanni reikningshalds til að leiða reikningshald og uppgjör samstæðunnar.

Ásar eru stækkandi samstæða og móðurfélag Símans, Billboard og Greiðslumiðlunar Íslands. Framundan er spennandi uppbygging þar sem tækifæri eru til að þróa og samræma fjármálaferla þvert á samstæðuna. Forstöðumaður reikningshalds gegnir lykilhlutverki í þeirri vegferð og fær tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun reikningshalds, uppgjörsferla og innra eftirlits.

Forstöðumaður reikningshalds leiðir teymi sérfræðinga á fjármálasviði og heyrir undir fjármálastjóra Ása.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á reikningshaldi og mánaðar-, ársfjórðungs- og ársuppgjörum samstæðunnar
  • Ábyrgð og umsjón með samstæðuuppgjöri, afstemmingum og millifærslum milli félaga
  • Ábyrgð á gerð ársreikninga og samskiptum við endurskoðendur
  • Tryggja að reikningsskil séu í samræmi við viðeigandi reikningsskilareglur og kröfur
  • Umsjón með skattamálum, virðisaukaskatti og öðrum lögbundnum skilum
  • Stuðningur við fjárhagsáætlanagerð, sjóðstreymi og greiningar
  • Samstarf við stjórnendur, fjármálateymi og önnur svið innan samstæðunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði reikningshalds, fjármála eða viðskipta
  • Mjög góð reynsla af reikningshaldi og fjárhagsuppgjörum
  • Djúp þekking og reynsla af samstæðuuppgjörum er nauðsynleg
  • Góð þekking á ársreikningagerð og viðeigandi reikningsskilareglum
  • Reynsla af endurskoðun, uppgjöri stærri fyrirtækja eða fjölþættri samstæðu er mikill kostur
  • Góð þekking á fjárhagskerfum og framúrskarandi færni í Excel
  • Reynsla af SAP fjárhagskerfi er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Reynsla af nýtingu gervigreindar í fjármálaferlum er kostur
Persónulegir eiginleikar
  • Öguð og nákvæm vinnubrögð
  • Sterk greiningarhæfni og góður skilningur á rekstri
  • Sterk umbótahugsun
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Leiðtogahæfileikar og geta til að byggja upp öflug teymi
Fríðindi í starfi
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
  • Aðgengi að velferðarþjónstu Heilsuverndar
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur
  • Námsstyrkir
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
  • Gleraugnastyrkur
Aðrar upplýsingar

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir reynslu umsækjanda sem nýtist í starfinu. 

Umsóknarfrestur er til og með 11. október n.k. 

Sótt er um starfið á vef Hagvangs. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Briem - [email protected] og Þórdís Sif Arnarsdóttir - [email protected].

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt30. september 2026
Umsóknarfrestur11. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar