

Forstöðumaður Íbúðakjarna í Ólafsvík
- Stjórnandi búsetuúrræða er leiðtogi í þjónustu við fatlað fólk og ber ábyrgð á faglegri forystu, rekstri og þróun þeirra þjónustueininga sem undir hann heyra.
- Hlutverk stjórnanda er að tryggja að þjónusta sé veitt í samræmi við lög, reglugerðir, stefnur og þarfir notenda, með það að markmiði að efla sjálfstætt líf, samfélagsþátttöku, valdeflingu og lífsgæði einstaklinga á eigin heimili.
- Við leitum að hæfum og metnaðarfullum stjórnanda til að leiða rekstur 5 íbúða einingar.
- Stjórnandi ber ábyrgð á daglegum rekstri, starfsmannastjórnun og faglegri stjórnsýslu.
- Starfið felur í sér að tryggja gæði þjónustu, styðja við og leiða starfsfólk og stuðla að góðu og faglegu vinnuumhverfi.
- Við leitum að einstaklingi sem sýnir sjálfstæði og frumkvæði í starfi, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur seiglu til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Fagleg forysta og dagleg stjórnun þjónustunnar
- Ábyrgð á rekstri, skipulag og nýtingu fjármagns
- Mannauðsstjórnun, ráðningar, starfsþróun og stuðningur við starfsfólk
- Þróun þjónustunnar í samræmi við þarfir notenda, fagleg viðmið og stefnur sveitarfélagsins
- Samstarf við notendur, aðstandendur, starfsfólk, stjórnendur og aðra samstarfsaðila
- Að tryggja að þjónustan sé veit í samræmi við lög, reglugerðir og gæðakröfu
- Þátttaka í þróunar- og umbótarverkefnum
- Stjórnunar og /eða mannauðsmenntun
- Reynsla af stjórnun og /eða mannaforráðum æskileg
- Reynsla og þekking á þjónustu við fatlað fólk er kostur
- Leiðtogahæfni og hæfni til að hvetja og styðja við starfsfólk
- Góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð nálgun
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- jákvætt viðhorf til þróunar, nýsköpunar og umbóta í þjónustu.
Íslenska








