
Reikningshald og skrifstofustjórn
Alfa Framtak er rekstraraðili sérhæfðra sjóða. Við fjárfestum í fjölbreyttum fyrirtækjum, styðjum við vöxt og leiðum umbreytingar. Við vinnum náið með stjórnendum, athafnafólki og fyrirtækjaeigendum sem vilja ná því besta út úr sínum rekstri. Markmið okkar er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum af okkur í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir okkur jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.
Við leitum nú að liðsauka við fjármála- og rekstrarteymið í reikningshald og skrifstofustjórn. Starfið felur í sér færslu bókhalds og uppgjör á sjóðum og eignarhaldsfélögum sem eru í umsjón Alfa Framtaks. Um er að ræða mörg félög með fáar en flóknar aðgerðir svo sem kaup og sölu eigna, gangvirðisbreytingar, hækkun og lækkun hlutafjár og þarf því viðkomandi af hafa góðan skilning á efnahag, sjóðstreymi og eigin fé.
Samhliða bókhaldsstörfum ber viðkomandi ábyrgð á daglegri skrifstofustjórn. Þar undir fellur gestamóttaka, innkaup á aðföngum og búnaði fyrir skrifstofuna og tilfallandi skipulagning viðburða á vegum félagsins.
Starfshlutfall er umsemjanlegt á bilinu 50-100%
Viðkomandi þarf að hafa góðan skilning á reikningshaldi og ársreikningum. Reynsla af Business Central er kostur.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt í sínum störfum og leggja mikið á sig við nákvæmni upplýsinga og tímanleg skil.
Hjá Alfa Framtak starfar samheldinn hópur starfsmanna sem kappkostar að nýta rödd og þekkingu allra við borðið. Við leitum því að aðila sem er í senn með metnað og auðmýkt til þess að starfa með fjölbreyttum hópi starfsfólks, fjárfesta og stjórnenda.
Við óskum þess að umsókn fylgi ferilskrá og kynningarbréf sem gerir skilmerkilega grein fyrir ofangreindri hæfni og reynslu. Vinsamlegast skilið ferilskrá og kynningarbréfi í einu og sama skjalinu.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október nk.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]
Íslenska










