Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Launa- og rekstrarfulltrúi

Barna- og fjölskyldustofa leitar að metnaðarfullum og nákvæmum einstaklingi í stöðu launa- og rekstarfulltrúa. BOFS er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður sem sinnir mikilvægum verkefnum í þágu velferðar barna og fjölskyldna um allt land.

Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs og verður viðkomandi einn af þremur launa- og rekstrarfulltrúum hjá stofnuninni. Starfið felur meðal annars í sér launavinnslu fyrir bæði dagvinnu- og vaktavinnufólk og krefst því góðrar þekkingar á ólíkum launa- og kjaratengdum þáttum. Um 100% starf er að ræða með fasta starfsstöð í Borgartúni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla.

  • Bókhald og reikningagerð.

  • Bókun og frágangur fylgiskjala vegna innkaupakorta.

  • Bókhaldsmerkingar og samþykktir reikninga.

  • Innkaup.

  • Samskipti við starfsfólk og viðskiptamenn

  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármála- og mannauðssviði.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af sambærilegu starfi.

  • Reynsla af launavinnslu vaktavinnufólks er kostur.

  • Góð íslenskukunnátta.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Sveigjanleiki og hæfni til að aðlagast breytingum.

  • Frumkvæði og áhugi á að tileinka sér nýjar lausnir og aðferðir og þróa og bæta verkferla.

  • Hæfni til að sjá tækifæri til einföldunar, hagræðingar og aukinnar sjálfvirkni.

  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Jákvætt viðhorf og þjónustulund.

Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar