Veitur
Veitur
Veitur

Deildarstjóri/-stýra eignastýringar og viðhaldsáætlana hjá Veitum

Veitur leita að öflugum leiðtoga til að byggja upp og stýra nýrri deild: Eignastýring og viðhaldsáætlanir.

Deildin gegnir lykilhlutverki í því að efla fyrirbyggjandi viðhald, auka áreiðanleika veitukerfanna og tryggja markvissar ákvarðanir um viðhald og endurnýjun lagna, rafstrengja og búnaðar.

Starfið er nýtt og gefur því viðkomandi tækifæri til að móta mikilvægan þátt í framtíðarrekstri Veitna. Viðkomandi leiðir uppbyggingu á sameiginlegri aðferðafræði og verklagi við eignastýringu og innleiðingu áhættumiðaðra aðferða, þar á meðal áreiðanleikamiðaðs viðhalds (RCM).

Um starfið

Deildin tilheyrir sviðinu Veitukerfi og starfar þvert á rafveitu, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu. Hún tryggir að ákvarðanir um viðhald og endurnýjun byggi á traustum gögnum, mati á ástandi og áhættu, afkastagetu, þjónustuþörf og líftíma veitukerfanna.

Deildin vinnur náið með rekstri að því að greina þarfir og nýta gögn, rekstrarreynslu og skilgreindar kröfur til að móta skýrar og forgangsraðaðar viðhalds- og endurnýjunaráætlanir.Markmið deildarinnar er skýrt, að tryggja að viðhald fari fram á réttum tíma til að koma í veg fyrir bilanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Byggja upp deildina og leiða þverfaglegt teymi sérfræðinga
  • Móta og innleiða sameiginlega aðferðafræði við eignastýringu, áhættumat og viðhaldsáætlanir
  • Leiða innleiðingu áreiðanleikamiðaðs viðhalds (RCM) þvert á veitukerfin
  • Leggja grunn að ákvörðunum um viðhald, endurnýjun og fjárfestingar, fylgja árangri eftir og leiða stöðugar umbætur
  • Leiða breytingar á vinnubrögðum og tryggja gott samstarf við rekstur, framkvæmdir og fjárfestingastýringu


Deildarstjóri/-stýra byggir upp nýja deild, mótar vinnubrögð hennar og leiðir þverfaglegt teymi sérfræðinga. Viðkomandi mun tilheyra stjórnendateymi sviðsins Veitukerfi og heyra undir forstöðukonu.

Við leitum að leiðtoga sem hefur:
  • Sterka leiðtogahæfni og reynslu af að byggja upp teymi og ný vinnubrögð
  • Metnað til að setja skýr markmið og fylgja þeim eftir þar til árangur næst
  • Hæfni til að tengja saman gögn og breyta greiningu í framkvæmanlegar áætlanir
  • Sterka kerfishugsun og vinnur markvisst með bæði gögn og fagþekkingu starfsfólks
  • Reynslu af breytingastjórnun, getur miðlað flóknum greiningum á skýran hátt og skapað traust, skýra ábyrgð og gott samstarf þvert á fag- og rekstrareiningar
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis í verkfræði, tæknifræði, rekstrarverkfræði eða sambærilegu námi


Reynsla af störfum úr veitum, orku, framleiðslu, stóriðju eða öðru eignafreku rekstrarumhverfi er kostur. Þekking á ISO 55000-staðlaröðinni, RCM, FMEA/FMECA, rótargreiningum, áhættustýringu, líftímakostnaði eða eignastýringu og viðhaldi er einnig kostur.

Hvers vegna Veitur?

Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og reka innviði sem samfélagið treystir á allan sólarhringinn. Við tengjum stóran hluta landsmanna við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.

Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að byggja upp nýja deild og móta hvernig Veitur vinna með eignir, áhættu, viðhald og áreiðanleika næstu árin. Viðkomandi fær að leiða raunverulega breytingu sem á að skila færri bilunum, öruggari þjónustu og markvissari nýtingu tíma og fjármuna.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum því að ólík reynsla, þekking og sjónarmið leiði til betri ákvarðana og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði starfsins til að sækja um.

Kynntu þér vinnustaðinn nánar á www.veitur.is/vinnustadurinn.

Fríðindi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Aðgangur að Velferðartorgi
  • Fæðingarorlofsstyrkur
  • Aðgangur að líkamsræktarsal
  • Mötuneyti á starfsstöð
  • Fræðslustyrkir
  • Aðgangur að orlofshúsum
  • Góð aðstaða fyrir hjólreiðafólk
Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2026

Nánari upplýsingar veitir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Veitukerfa, á netfanginu [email protected].

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.

Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar