Frístundamiðstöðin Þorpið
Frístundamiðstöðin Þorpið

Deildarstjóri óskast í afleysingu

Frístundamiðstöðin Þorpið óskar eftir að ráða inn deildarstjóra á frístundaheimilið Krakkadal.

Um er að ræða 100% starf í afleysingu til eins árs.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Deildarstjóri heyrir undir stjórnendateymi Þorpsins og næsti yfirmaður er forstöðumaður.

Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, faglegu starfi og stjórnun Krakkadals í samræmi við stefnur Akraneskaupstaðar, lög, reglugerðir, verklagsreglur og önnur viðmið sem gilda um starfsemi frístundaheimila.

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri ber ábyrgð á:

  • Faglegri stjórnun og þróun starfs Krakkadals,

  • Daglegum rekstri og skipulagi frístundaheimilisins,

  • Stjórnun og verkstjórn starfsfólks,

  • Að réttindi, öryggi og velferð barna séu ávallt höfð að leiðarljósi,

  • Samstarfi og upplýsingamiðlun við foreldra og forsjáraðila,

  • Samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög og aðra skipulagða frístundaþjónustu,

  • Þátttöku barna og lýðræðislegum vinnubrögðum,

  • Eftirfylgni með skráningum og upplýsingum um börn,

  • Að starfsfólk þekki og vinni samkvæmt gildandi lögum, reglum, stefnum og verklagi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Æskilegt er að umsækjandi hafi:

  • Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldis- eða menntunarfræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi.

Menntun og/eða umfangsmikil reynsla af faglegu frístunda- og æskulýðsstarfi getur verið metin með hliðsjón af kröfum starfsins.

Gerð er krafa um:

  • Góða leiðtoga- og stjórnunarhæfni,
  • Reynslu af starfi með börnum,

  • Jákvæðni og metnað,

  • Færni og lipurð í samskiptum,

  • Sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og frumkvæði.
Fríðindi í starfi

Matarkort Akraneskaupstaðar

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Þjóðbraut 13, 300 Akranes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar