Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður

Leikskólinn Naustatjörn óskar eftir að ráða kennara eða starfsmann með háskólamenntun sem nýtist í starfi í 80-100% ótímabundna stöðu.

Sé starfshlutfall minna en 100% felur starfið í sér að einhverja daga í viku verði viðvera til kl. 16, þó aðrir dagar séu styttri.

Æskileg starfsbyrjun er sem fyrst eða 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi.

Í Naustatjörn er lögð áhersla á að nemendur fái að kljást við margvísleg verkefni í gegnum sjálfssprottinn leik og að þeir læri af eigin reynslu, virkni og áhuga.

Áhersluþættir skólans eru leikurinn, UNICEF og Jákvæður agi. Aðrir áhersluþættir eru náttúra og umhverfi og lífsspeki Fisksins.

Einkunnarorð skólans eru: FESTA

Félagsfærni – Endurnýting – Sjálfstæði – Tillitssemi – Athvarf

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn á www.naustatjorn.akureyri.is

Áhugasama bjóðum við velkomna í heimsókn.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum skólans.
  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varða starfsemi skólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið kennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg.
  • Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við skemmtilegt starf með börnum og fullorðnum
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
  • Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga, er æskileg en þó ekki skilyrði.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli, auk þess sem almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar