Akureyri
Akureyri
Akureyri

Skipulagssvið Akureyrarbæjar: Verkefnastjóri skipulagsmála

Viltu taka þátt í að móta framtíð Akureyrarbæjar? Ef svo er, þá er laus til umsóknar spennandi staða verkefnastjóra skipulagsmála.

Um 100% stöðu er að ræða með sveigjanlegum vinnutíma. Meginstarfstöð er í Ráðhúsi Akureyrar.

Möguleiki er að vinna í fjarvinnu af og til ef það hentar, 36 klst. vinnuvika og mötuneyti á vinnustað.

Næsti yfirmaður er skipulagsfulltrúi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með aðal- og deiliskipulagsverkefnum á vegum bæjarins í samvinnu við skipulagsfulltrúa og aðra hagsmunaaðila.
  • Umsjón með stjórnsýslu varðandi afgreiðslu skipulagsmála.
  • Vinna að kynningarmálum um skipulagsmál.
  • Annast samskipti við Skipulagsstofnun og aðrar opinberar stofnanir.
  • Veita upplýsingar um skipulagsmál til íbúa- og annarra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólamenntun (BA, BS eða B.Ed.) í arkitektúr, landslagsarkitektúr, skipulagsfræði, landfræði, eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á sviði skipulagsmála er kostur.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og verklagi er kostur.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi og færni til að tileinka sér nýjungar.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og rík þjónustulund.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt23. september 2026
Umsóknarfrestur6. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.Arkitekt (húsameistari)PathCreated with Sketch.ArkítektúrPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.Landslagsarkitekt (landslagshönnuður)PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkipulagsfræðingurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar