Veitur
Veitur
Veitur

Forstöðukona/-maður framkvæmda hjá Veitum

Veitur leita að öflugum leiðtoga í starf forstöðukonu/-manns framkvæmda. Starfið er nýtt og umfangsmikið. Sviðið ber ábyrgð á verklegum framkvæmdum þvert á rafveitu, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu. Þar sameinast verkumsjón, viðbragð og viðhald. Verkefnin eru unnin af eigin framkvæmdaflokkum og verktökum.

Veitur þjónusta um 70% landsmanna með ómissandi innviðum. Fyrirtækið er á einu stærsta uppbyggingarskeiði sínu og fjárfestir fyrir 20–25 milljarða króna á ári. Veitur þjónusta höfuðborgarsvæðið og stór svæði á Suður- og Vesturlandi. Fyrirtækið rekur yfir 11.000 km af strengjum og lögnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstöðukona/-maður byggir upp sviðið, mótar áherslur og eflir framlínuna. Hann tryggir öruggar, skilvirkar og vandaðar framkvæmdir, skýra ábyrgð, betra flæði verkefna og faglega stýringu verktaka. Lykilverkefnið er að efla fyrirbyggjandi viðhald og halda uppi öflugu viðbragði þegar á reynir.

Viðkomandi situr í framkvæmdastjórn og tekur þátt í stefnumótun Veitna.

Við leitum að leiðtoga sem:
  • Hefur öfluga leiðtogahæfni og umtalsverða reynslu af stjórnun umfangsmikils rekstrar og fjölbreyttra teyma.
  • Hefur reynslu af framkvæmdum eða tæknilegu rekstrarumhverfi.
  • Hefur reynslu af að byggja upp starfsemi, leiða breytingar og skapa skýrt skipulag, ábyrgð og árangursríka samvinnu.
  • Hefur sterkan rekstrarskilning og vinnur markvisst að aukinni skilvirkni, gæðum og stöðugum umbótum.
  • Getur byggt upp öfluga liðsheild, eflt stjórnendur og skapað menningu þar sem ábyrgð, samstarf og árangur fara saman.
  • Hefur skýra framtíðarsýn og getu til að tengja stefnu við daglegan rekstur og raunhæfar aðgerðir.
  • Hefur framúrskarandi hæfni í samskiptum og samstarfi og ríka öryggisvitund.
  • Menntun sem nýtist í starfinu.
Hvers vegna Veitur?

Veitur tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Við veitum lífsgæði til framtíðar með nýsköpun, samstarfi og öruggum rekstri. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónusta um 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í forgrunn, leitum stöðugt leiða til að bæta þjónustuna og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.

Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum að fjölbreytileiki skili betri árangri og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði til að sækja um.

Kynntu þér vinnustaðinn á www.veitur.is/vinnustadurinn.

Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026. Nánari upplýsingar veitir Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, á netfanginu [email protected].

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.

Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar