

Deildarstjóri framleiðslustýringar
Orka náttúrunnar leitar að framsæknum leiðtoga til að byggja upp og leiða framleiðslustýringu innan Orkuframleiðslu.
Framleiðslustýring er ný eining sem styður við raforku- og heitavatnsframleiðslu virkjana með áherslu á gagnagreiningar, áætlanagerð, auðlindamál, árangursmælikvarða, yfirsýn viðhaldsverkefna og umbætur í rekstri.
Sem deildarstjóri berð þú ábyrgð á að móta starfsemi deildarinnar, byggja upp öflugt teymi og tryggja heildstæða samræmingu framleiðslu og viðhaldsverkefna virkjana ON. Þú tryggir að áætlanir, forgangsröðun, gögn, greiningar og umbótaverkefni styðji við öruggan, hagkvæman og sjálfbæran rekstur.
Hlutverkið krefst skýrrar yfirsýnar, sterkrar leiðtogahæfni og getu til að vinna þvert á rekstur, viðhald, tækni, auðlindamál og þróunarverkefni.
Ef þú hefur áhuga á að setja handbragð þitt á framtíðarþróun Nesjavallavirkjunar og Hellisheiðarvirkjunar, stærstu jarðvarmavirkjunar Evrópu, gæti þetta verið spennandi tækifæri fyrir þig.
Í hlutverki deildarstjóra felst meðal annars:
- Að móta markmið og starfsemi framleiðslustýringar í takt við stefnu ON
- Að leiða uppbyggingu teymis og daglega stjórnun
- Ábyrgð á mótun, samræmingu og eftirfylgni framleiðslu- og viðhaldsáætlana fyrir virkjanir ON
- Að styðja við uppbyggingu sterkrar öryggismenningar og tryggja að öryggi sé ávallt haft að leiðarljósi
- Að leiða greiningar og umbótaverkefni sem auka skilvirkni og draga úr sóun
- Að leiða auðlindamál gagnvart rekstri virkjana
- Ábyrgð á skilgreiningu lykilmælikvarða, reglulegri eftirfylgni með árangri og miðlun niðurstaðna til starfsfólks
- Að leiða umbætur sem styrkja rekstraröryggi, skilvirkni og gagnadrifna framleiðslustýringu
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir:
- Þekkingu á rekstri í framleiðsluumhverfi
- Hæfni til að tengja saman rekstur, viðhald, gögn og árangursmælikvarða til að styðja við ákvarðanatöku
- Sterkri leiðtogahæfni og reynslu af því að byggja upp teymi
- Góðri greiningarhæfni og áhuga á gagnadrifinni ákvarðanatöku
- Reynslu af umbótavinnu, áætlanagerð og verkefnastýringu
- Þekkingu á skýrslu- og greiningartólum, svo sem Power BI, Tableau eða sambærilegum lausnum
- Hæfni til að miðla upplýsingum skýrt og vinna þvert á ólík teymi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.











