Orkusalan
Orkusalan

Sérfræðingur í orkumiðlun

Við hjá Orkusölunni leitum að öflugum sérfræðingi í orkumiðlun sem hefur gaman af tölum og greiningum, sýnir frumkvæði og kann vel við ábyrgð. Viðkomandi fær tækifæri til að vinna að verkefnum sem hafa bein áhrif á rekstur Orkusölunnar og taka virkan þátt í áframhaldandi þróun orkumiðlunar hjá fyrirtækinu.

Orkusalan á og rekur sex vatnsaflsvirkjanir og selur raforku til heimila og fyrirtækja um allt land. Hlutverk orkumiðlunar er að kaupa og selja raforku á heildsölumarkaði til að mæta raforkuþörf viðskiptavina Orkusölunnar með hagkvæmum hætti.

Starfið felur því í sér náið samstarf og góða teymisvinnu þvert á svið Orkusölunnar, enda byggja góðar ákvarðanir í orkumiðlun á upplýsingum og þekkingu víða úr starfsemi félagsins. Orkumarkaðurinn er síbreytilegur og starfið krefst þess að horft sé bæði til dagsins í dag og fram á veginn. Við gerum orkuáætlanir, greinum þróun og tækifæri á markaði og metum ólíkar sviðsmyndir til að styðja við góðar ákvarðanir við orkuöflun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framkvæmd og umsjón með orkuáætlunum
  • Orkuinnkaup og viðskipti á heildsölumörkuðum með raforku
  • Tilboðsgerð og greiningarvinna
  • Þróun lausna sem stuðla að hagkvæmari og skilvirkari orkuöflun
  • Þátttaka í verkefnum og áframhaldandi þróun orkumiðlunar hjá Orkusölunni
  • Virk þátttaka í þróun og uppbyggingu vinnustaðamenningar Orkusölunnar
  • Önnur tilfallandi verkefni innan eðlilegs starfssviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði verkfræði, viðskiptafræði eða skyldra greina
  • Sterk greiningarhæfni og gott talnaskyn
  • Góð skipulagshæfni, samviskusemi og öguð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, taka ábyrgð og vinna undir álagi
  • Frumkvæði, jákvæðni og góð samskiptahæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Verðbréfaréttindi eru kostur
Auglýsing birt3. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar