
Verslunarstjóri Kjöthallarinnar - Skipholti 70
Ert þú drífandi, úrræðagóð og þjónustulunduð manneskja sem hefur gaman af fólki og góðum mat?
Kjöthöllin leitar að öflugum verslunarstjóra til að leiða daglegan rekstur verslunar okkar í Skipholti 70.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðri þjónustu, tekur frumkvæði og er tilbúinn að bretta upp ermar þegar á þarf að halda. Verslunarstjórinn gegnir lykilhlutverki í að skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini, byggja upp öflugan starfsmannahóp og tryggja að daglegur rekstur gangi vel.
Starfið er fjölbreytt og lifandi þar sem engir tveir dagar eru alveg eins. Viðkomandi þarf að hafa gott auga fyrir því sem betur má fara, vera lausnamiðaður og njóta þess að taka virkan þátt í daglegum störfum verslunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Dagleg stjórnun og skipulagning verslunarinnar
-
Starfsmannahald, vaktaskipulag og stuðningur við starfsfólk
-
Virk þátttaka í afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini
-
Umsjón með innkaupum, vöruframboði og birgðahaldi
-
Ábyrgð á áfyllingu, framsetningu og ásýnd verslunarinnar
-
Eftirfylgni með sölu, rekstri og tækifærum til umbóta
-
Náin samvinna við stjórnendur og önnur tilfallandi verkefni
Hæfni og eiginleikar
-
Framúrskarandi þjónustulund og góð samskiptahæfni
-
Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
-
Jákvætt viðhorf, útsjónarsemi og lausnamiðuð hugsun
-
Hæfni til að leiða, hvetja og vinna með öðrum
-
Ábyrgðartilfinning og metnaður fyrir góðum árangri
-
Áhugi á matvælum og góðri matarupplifun
-
Reynsla af verslunarrekstri eða stjórnun er kostur
-
Góð íslenskukunnátta
Starfshlutfall og vinnutími
Um er að ræða 80–100% starf og er fyrirhugaður vinnutími eftirfarandi:
-
Mánudagar og föstudagar: 8:00–14:30
-
Þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar: 10:00–18:00
-
Einn laugardagur í mánuði: 10:00–17:00
Nánari útfærsla á vinnutíma og starfshlutfalli verður ákveðin í samráði við viðkomandi.
Hvað bjóðum við upp á?
Hjá Kjöthöllinni tekur þú við fjölbreyttu og skemmtilegu starfi í góðum hópi þar sem samvinna, jákvæðni og góð þjónusta eru í fyrirrúmi.
Verslunin er í uppbyggingu og fram undan eru spennandi tímar. Hér gefst tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á daglegan rekstur, móta starfsemina og vaxa með fyrirtækinu.
Við vitum að góður verslunarstjóri þarf ekki endilega að hafa verið verslunarstjóri áður. Fyrir okkur skipta viðhorf, frumkvæði, mannleg samskipti og viljinn til að ná árangri ekki síður máli en fyrri starfsreynsla.
Ef þú sérð þig í þessu hlutverki viljum við endilega heyra frá þér!
Farið verður yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
Íslenska
Enska










