Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfsmaður í íþróttamannvirkjum - helgarstarf

Íþróttamannvirkin við Digranes og í Furugrund auglýsa laust til umsóknar helgarstarf fyrir 20 ára og eldri.

Í starfinu felst m.a. þjónusta og samskipti við iðkendur og notendur ásamt þrifum, öryggisgæslu og klefavörslu.

Unnið er aðra hvora helgi. Vinnutími fer eftir opnunartíma íþróttahúsanna og er ýmist kl. 8:00-15:00 eða kl. 15:00-22:00 á laugardögum og sunnudögum, eftir þörfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka vel á móti gestum íþróttahússins, aðstoða þá og leiðbeina
  • Klefavarsla sem er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum
  • Afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf
  • Ræsting og þrif á öðrum rýmum íþróttahússins
  • Eftirlit með tækjum, húsbúnaði o.fl. sem heyrir undir íþróttahúsið
  • Sýna notendum íþróttahússins gott fordæmi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsfólk íþróttamannvirkja verður að vera orðið 20 ára
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og þolinmæði
  • Góð samstarfshæfni og þjónustulund
  • Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Enskukunnátta æskileg
  • Grunnmenntun í skyndihjálp æskileg
  • Almenn tölvukunnátta æskileg
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Furugrund 83, 200 Kópavogur
Skálaheiði 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar