Raftákn
Raftákn
Raftákn

Skrifstofu- og gæðastjóri

Raftákn verkfræðistofa leitar að skipulögðum, áreiðanlegum og framsýnum einstaklingi í framtíðarstarf skrifstofu- og gæðastjóra á starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk þar sem viðkomandi hefur umsjón með fjármálum og gæðamálum fyrirtækisins auk innra starfi.

Viðkomandi fær tækifæri til að móta og þróa starfið með innleiðingu á aukinni sjálfvirkni og gervigreind til að straumlínulaga innri ferla og rekstur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjármál og bókhald: Umsjón með daglegu bókhaldi, launavinnslu, reikningagerð, greiðslu reikninga og innheimtu. Halda utan um og fylgja eftir kostnaðaráætlunum verkefna í samstarfi við verkefnastjóra.
  • Gæða- og persónuverndarmál: Viðhald og þróun á ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins ásamt því að gegna hlutverki persónuverndarfulltrúa.
  • Þjónusta, skipulag og innkaup: Daglegur rekstur skrifstofu og ýmis þjónusta við starfsfólk ásamt virkri þátttöku í markaðsstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lögð er rík áhersla á heiðarleika, áreiðanleika og samviskusemi í störfum og gerð krafa um hreina sakaskrá.
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (t.d. tengt bókhaldi, viðskiptafræði eða stjórnun).
  • Reynsla af bókhaldskerfum og launavinnslu er skilyrði. Raftákn notar BC fyrir bókhald og Tempo Timesheets fyrir tímaskráningar. Reynsla af BC er mikill kostur.
  • Áhugi á nýtingu gervigreindar og tæknilausna.
  • Þekking og reynsla af gæðastjórnun (ISO 9001) og persónuverndarmálum er mikill kostur.
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Rík þjónustulund, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 34, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar