BYKO
BYKO

Sérfræðingur í innheimtu og greiðslum

BYKO leitar að öflugum og drífandi sérfræðingi í innheimtu og greiðslum til að styrkja fjármálateymi fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og ábyrgðarmikið og spannar meðal annars greiðslur, viðskiptakröfur, innheimtu og eftirlit með greiðsluflæði.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gott auga fyrir tölum, vinnur skipulega og af nákvæmni og á auðvelt með samskipti. Hér er spennandi tækifæri til að taka ábyrgð, hafa áhrif á verklag og þróun og gegna mikilvægu hlutverki í öflugu fjármálaumhverfi BYKO.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með daglegum greiðslum og launagreiðslum.
  • Umsjón með gjaldeyriskaupum og lánaheimildum.
  • Eftirlit með viðskiptakröfum, aldursgreining og flokkun krafna.
  • Umsjón og eftirfylgni með innheimtu, löginnheimtu og dómsmálum vegna vangreiðslna.
  • Umsjón með viðskiptakjörum og virkt eftirlit með greiðsluflæði.
  • Samskipti og samstarf við viðskiptavini og aðra hagaðila vegna greiðslu- og innheimtumála.
  • Þátttaka í umbótum og þróun verklags á sviði innheimtu og greiðslna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af innheimtu, greiðslumiðlun, viðskiptakröfum eða sambærilegum verkefnum er kostur.
  • Góð talna- og greiningarfærni.
  • Nákvæmni, skipulag og öguð vinnubrögð.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt og fylgja málum eftir.
  • Góð almenn tölvufærni og reynsla af fjárhagskerfum er kostur.

BYKO er eitt þekktasta fyrirtæki landsins á sviði byggingarvara og lausna fyrir heimilið og hefur um árabil verið traustur samstarfsaðili bæði einstaklinga og fagfólks. Fyrirtækið býður fjölbreytt vöruúrval, sterka þjónustu og víðtæka þekkingu með það að markmiði að gera viðskiptavinum auðveldara að koma hugmyndum og verkefnum í framkvæmd.

Hjá BYKO starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, samstarf og góða þjónustu. Fyrirtækið leggur metnað í að þróast í takt við þarfir viðskiptavina og markaðarins og skapa umhverfi þar sem frumkvæði og góðar hugmyndir fá að njóta sín.

BYKO er kraftmikill og metnaðarfullur vinnustaður þar sem starfsfólk fær tækifæri til að taka ábyrgð, hafa áhrif og þróast áfram í starfi.

www.byko.is

Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Nánari upplýsingar veita Bjarki Pétursson ([email protected]) og Jensína K. Böðvarsdóttir, ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GjaldkeriPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar