
Orkusalan
Hlutverk Orkusölunnar er að framleiða, kaupa og selja rafmagn til heimila, fyrirtækja og stofnana um allt land. Orkusalan er eina fyrirtækið á raforkumarkaði sem hefur kolefnisjafnað bæði rekstur og vinnslu raforku.
Sérfræðingur í þróun virkjana
Við hjá Orkusölunni leitum að öflugum sérfræðingi til að taka þátt í þróun virkjana og framgangi þróunarverkefna félagsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er að því að greina ný tækifæri til raforkuframleiðslu, koma verkefnum áfram og fylgja þeim eftir í gegnum ólík stig þróunar. Starfið felur í sér samskipti við landeigendur, sveitarfélög og aðra hagaðila og krefst getu til að byggja upp traust og góð samskipti.
Orkusalan á og rekur sex vatnsaflsvirkjanir og vinnur að þróun nýrra orkukosta á sviði vatnsafls, vindorku og jarðvarma. Flestar virkjanir og þróunarverkefni félagsins eru á Austurlandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina og þróa ný tækifæri til raforkuframleiðslu á Íslandi
- Hafa samskipti við landeigendur, leyfisveitendur, sveitarfélög og ráðgjafa
- Fylgja eftir verkefnum félagsins á vettvangi rammaáætlunar, umhverfismats, skipulagsmála og annarra leyfisferla
- Undirbúa og taka þátt í vettvangsrannsóknum
- Greina og útfæra möguleika til endurbóta og eflingar á núverandi virkjunum Orkusölunnar
- Hafa eftirlit með framvindu verkefna og lausn vandamála
- Samræma vinnu og samstarf við önnur teymi innan fyrirtækisins
- Taka þátt í þróun og uppbyggingu starfsemi og vinnustaðamenningar
- Önnur tilfallandi verkefni innan eðlilegs starfssviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði verkfræði, umhverfisfræði, viðskiptafræði, skipulagsmála, verkefnastjórnunar eða skyldra greina
- Reynsla af orkumálum, þróun innviða eða sambærilegum verkefnum
- Reynsla af verkefnastjórnun eða kynningarmálum er kostur
- Þekking á leyfismálum og starfsumhverfi orkufyrirtækja er kostur
- Frumkvæði, drifkraftur og góð greiningarhæfni
- Sterk samskipta- og samstarfshæfni
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri á Verkefnastofu
Norðurorka hf.

Verkefnastjóri fjárfestinga
Rio Tinto á Íslandi

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Sérfræðingur í kjaramálum á Akureyri
Kjölur stéttarafélag í almannaþjónustu

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur
Stálvík ehf

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Avionics/Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun