Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta Icelandic

Avionics/Modifications Engineer

Air Atlanta leitar að öflugum aðila til að ganga til liðs við verkfræðideild félagsins.

Í verkfræðideildinni starfar samheldinn hópur sem sinnir verkefnum tengdum viðhaldi, áreiðanleika og áframhaldandi lofthæfi flugvélaflotans, í nánu samstarfi við flugvélaframleiðendur, viðhaldsaðila og aðra samstarfsaðila.

Air Atlanta Icelandic rekur Boeing 747-400 og Boeing 777-200/-300 flugvélar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með Avionics-búnaði flugvélaflotans og tilheyrandi tæknilegum gögnum
  • Umsjá og aðstoð við stærri breytingar á flugvélum ásamt lofthæfi gögnum
  • Umsjón og uppfærslur á hugbúnaði um borð í flugvélum
  • Tæknileg aðstoð við bilanagreiningu (troubleshooting) og úrlausn tæknilegra vandamála
  • Greining og úrvinnsla tæknilegra gagna
  • Samstarf við flugvélaframleiðendur, viðhaldsaðila og aðra birgja vegna tæknilegra mála
  • Náið samstarf við aðrar deildir sem sinna áframhaldandi lofthæfi og viðhaldi flugflotans
  • Önnur verkefni í samráði við Manager Engineering
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða starfsreynsla á sviði flugvirkjunar, rafmagns-, rafeinda- eða flugverkfræði eða sambærilegur tæknilegur bakgrunnur
  • EASA Part-66 B2 flugvirkjaskírteini er kostur
  • Þekking og/eða reynsla af Avionics-kerfum flugvéla
  • Reynsla af verkfræði-, viðhalds- eða tæknistörfum innan flugrekstrar er kostur
  • Reynsla af Boeing 747-400 og/eða Boeing 777 er kostur
  • Hæfni til að lesa, túlka og vinna úr tæknilegum gögnum og viðhaldsleiðbeiningum
  • Þekking á EASA Part-M og Part-CAMO og tengdum kröfum um áframhaldandi lofthæfi er kostur
  • Mjög góð enskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð ásamt frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Sterk öryggisvitund og góð samskipta- og samstarfshæfni
Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar