Stálvík ehf
Stálvík ehf

Véltæknifræðingur, Vélaverkfræðingur

Stálvík leitar að öflugum einstaklingi til að styrkja tækniteymi fyrirtækisins.

Stálvík ehf. er öflugt og vaxandi fyrirtæki með starfsstöð við í Hafnarfirði. Við sérhæfum okkur í heildarlausnum á sviði hönnunar, smíði, uppsetninga, viðhalds og viðgerða fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina.

Verkefnin okkar eru fjölbreytt og spanna allt ferlið frá hugmynd að hönnun og útfærslu yfir í smíði, uppsetningu og afhendingu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, lausnamiðaða hugsun og vönduð vinnubrögð og tökumst reglulega á við krefjandi og spennandi verkefni þar sem reynir á bæði tæknilega þekkingu og hugvit.

Bak við Stálvík stendur öflugur hópur fagfólks með mikla reynslu og þekkingu. Við leggjum mikla áherslu á gott starfsumhverfi, sterk samskipti og að fólkið okkar hafi tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins og vinna með okkur að fjölbreyttum verkefnum frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar lausnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og útfærsla á stálvirkjum, lögnum, vélbúnaði og öðrum tæknilegum lausnum
  • Tilboðsgerð, kostnaðaráætlanir og magnútreikningar
  • Samskipti og samvinna við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
  • Mælingar og vettvangsskoðanir vegna nýsmíði, breytinga og viðgerða
  • Undirbúningur verkefna og stuðningur við framleiðslu og uppsetningu
  • Undirbúningur verkefna og eftirfylgni með tímaáætlunum, kostnaði og framvindu verkefna
  • Gerð og utan umhald tæknigagna og annarra verkefnaskjala

Starfið er fjölbreytt og umfang þess getur þróast eftir reynslu, þekkingu og styrkleikum viðkomandi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í vélaverkfræði, véltæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Iðnmenntun og/eða góð verkleg reynsla úr málm- eða véliðnaði er mikill kostur
  • Þekking og reynsla af AutoCAD og Autodesk Inventor
  • Góð tæknileg hugsun og hæfni til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með öðrum
  • Frumkvæði, ábyrgð og metnaður til að skila vönduðu verki
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli, er skilyrði
Auglýsing birt6. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hvaleyrarbraut 24, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar