Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup

Vilt þú nýta þína þekkingu á tollum og innkaupum til að einfalda rekstur fyrirtækja?

Wise leitar að lausnamiðuðum og drífandi ráðgjafa með sérþekkingu á tollamálum og innkaupum til starfa í Reykjavík eða á Akureyri. Við leitum að einstaklingi sem þekkir ferlið frá pöntun til tollafgreiðslu, hefur áhuga á tækni og nýtur þess að vinna náið með viðskiptavinum.

Í hverju felst starfið?

Þú verður hluti af öflugu teymi sérfræðinga sem ráðleggur viðskiptavinum um innkaup, innflutning og tollamál í Microsoft Dynamics 365 Business Central og tengdum lausnum Wise. Starfið felst meðal annars í greiningu og innleiðingu innkaupa- og tollferla, uppsetningu rafrænnar tollskýrslugerðar og útreikningi kostnaðarverðs, auk þjónustu og áframhaldandi þróunar lausna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini um innkaup, innflutning og tollamál í Microsoft Dynamics 365 Business Central.
  • Greining og innleiðing innkaupa- og tollferla, frá pöntun og flutningi til tollafgreiðslu og vörumóttöku.
  • Uppsetning og ráðgjöf um rafræna tollskýrslugerð, tollflokkun, aðflutningsgjöld og útreikning kostnaðarverðs.
  • Þátttaka í innleiðingum, uppfærslum og þróun tolla- og innkaupalausna Wise.
  • Leiðbeiningar til notenda, miðlun þekkingar og fagleg eftirfylgni með verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær þekking og reynsla af tollamálum, t.d. tollskýrslugerð, tollflokkun og aðflutningsgjöldum.
  • Reynsla af innkaupum, innflutningi eða vörustýringu.
  • Háskólamenntun eða önnur reynsla sem nýtist í starfi.
Auglýsing birt5. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Hafnarstræti 91, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business Central
Starfsgreinar
Starfsmerkingar