
Wise lausnir ehf.
Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, ráðgjöf og innleiðingu á breiðu úrvali viðskipta- og rekstrarlausna sem hjálpa fyrirtækjum að skara fram úr, mæta áskorunum og grípa ný tækifæri.
Lausnaframboð okkar samanstendur af hýsingar- og rekstrarþjónustu, öryggislausnum og heildstæðum viðskiptalausnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen.
Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina.
Wise er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsmanna.
Fyrirtækið býður upp á samkeppnishæf laun og hlaut jafnlaunavottun 2021 og viðurkenningu FKA Jafnvægisvogarinnar 2022.

Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu
Við hjá Wise leitum að öflugum og þjónustulunduðum kerfisstjóra í notenda- og útstöðvaþjónustu.
Starfið snýst um að veita viðskiptavinum Wise daglega upplýsingatækniþjónustu, aðstoða notendur og leysa fjölbreytt tæknileg vandamál. Við bjóðum upp á góða þjálfun og leitum að einstaklingi sem hefur góðan tæknilegan grunn, er lausnamiðaður, hefur áhuga á að læra og þróast í starfi.
Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á upplýsingatækni, kann að meta fjölbreytt verkefni og vill vinna í lifandi umhverfi þar sem samskipti við fólk og úrlausn vandamála eru stór hluti starfsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, úrvinnsla og eftirfylgni þjónustubeiðna frá viðskiptavinum Wise
- Tæknileg aðstoð og þjónusta við notendur
- Bilanagreining og úrlausn vandamála í hugbúnaði og vélbúnaði
- Uppsetning, þjónusta og viðhald á tölvum, útstöðvum og tengdum búnaði
- Aðstoð við notendur í Windows og Microsoft 365
- Fjaraðstoð og úrlausn tæknilegra vandamála hjá viðskiptavinum
- Samstarf við aðra sérfræðinga innan Wise við úrlausn flóknari mála
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun frá NTV eða sambærileg tæknimenntun
- Góður almennur skilningur á tölvum, netkerfum og upplýsingatækni
- Þekking á Windows og Microsoft 365
- Reynsla af notendaþjónustu er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt26. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarstræti 91, 600 Akureyri
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)


