
Wise lausnir ehf.
Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, ráðgjöf og innleiðingu á breiðu úrvali viðskipta- og rekstrarlausna sem hjálpa fyrirtækjum að skara fram úr, mæta áskorunum og grípa ný tækifæri.
Lausnaframboð okkar samanstendur af hýsingar- og rekstrarþjónustu, öryggislausnum og heildstæðum viðskiptalausnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen.
Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina.
Wise er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsmanna.
Fyrirtækið býður upp á samkeppnishæf laun og hlaut jafnlaunavottun 2021 og viðurkenningu FKA Jafnvægisvogarinnar 2022.

Business Central forritari
Viltu smíða ERP lausnir sem fyrirtæki og stofnanir nota á hverjum degi?
Wise leitar að lausnamiðuðum og metnaðarfullum forritara til starfa í Reykjavík eða á Akureyri. Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af forritun, vill dýpka þekkingu sína á ERP lausnum með áherslu á gervigreind.
Í hverju felst starfið?
Þú verður hluti af öflugu þróunarteymi sem forritar lausnir og vörur í Business Central. Teymið vinnur náið með ráðgjöfum og viðskiptavinum og kemur að öllu ferlinu, frá greiningu og hönnun til forritunar, prófana, uppfærslna og reksturs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun og viðhald á vörum og lausnum Wise fyrir Business Central.
- Hönnun og þróun á gervigreindarlausnum fyrir viðskiptaferla.
- Samvinnu við ráðgjafa við greiningu þarfa viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af AL-forritun í Microsoft Dynamics 365 Business Central.
- Þekking á Visual Studio Code, CI/CD og útgáfustýringu, t.d. Git.
Auglýsing birt5. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarstræti 91, 600 Akureyri
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Microsoft Dynamics 365 Business Central
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Verkefnastjóri- Gögn & Gervigreind
Fagkaup ehf

AI Engineer
50skills

AI Solutions Engineer
atNorth

Graphics Programmer
Fenris Creations

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Senior Software Engineer, Simulation Platform
Aveo ehf.

Sérfræðingur í gagna- og upplýsingastjórnun
Dómstólasýslan

Gagnaforritari
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Technical Artist (Mid-level/Senior), Unreal Engine 5
Aveo ehf.

Senior Infrastructure Engineer
Fenris Creations