KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.

Forritari gervigreindarlausna hjá KPMG Law

Viltu breyta snjöllum hugmyndum í hagnýtar gervigreindarlausnir?


Við leitum að lausnamiðuðum sérfræðingi til að hanna, þróa og innleiða gervigreindar- og tæknilausnir fyrir KPMG Law og viðskiptavini okkar. Þú munt greina þarfir, þróa frumgerðir og færa lausnir frá hugmynd yfir í örugga og skalanlega daglega notkun.Þú munt vinna náið með sérfræðingum KPMG á Íslandi, Norðurlöndum og innan alþjóðlegs tengslanets okkar. Starfið veitir einstakt tækifæri til að hafa áhrif á hvernig gervigreind er nýtt í skatta- og lögfræðiþjónustu.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hanna, þróa og innleiða gervigreindar- og tæknilausnir fyrir KPMG Law og viðskiptavini.
  • Greina þarfir notenda og umbreyta þeim í hagnýtar, endurnýtanlegar og skalanlegar lausnir.
  • Þróa og prófa frumgerðir með notendum og færa þær yfir í örugga daglega notkun.
  • Vinna með stór mállíkön, API tengingar, sjálfvirknivæðingu og samþættingu við núverandi kerfi.
  • Innleiða stafrænan vettvang (e.platform) KPMG Global fyrir skatta og lögfræðiþjónustu hjá viðskiptavinum.
  • Tryggja ábyrga notkun gervigreindar með hliðsjón af upplýsingaöryggi, persónuvernd og áhættustýringu.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, gagnavísinda, upplýsingatækni eða sambærilegu sviði sem nýtist í starfi.
  • Góð forritunarkunnátta og reynsla af hugbúnaðarþróun, sjálfvirknivæðingu og þróun stafrænna lausna.
  • Reynsla og þekking af því að vinna innan regluvædds og alþjóðlegs umhverfis er kostur en ekki skilyrði.
  • Hæfni til að greina þarfir og færa lausnir frá hugmynd og frumgerð yfir í örugga og nothæfa innleiðingu.
  • Góð samskipta og samstarfshæfni ásamt getu til að útskýra tæknileg atriði á skýran hátt fyrir ólíkum hópum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna vel í þverfaglegu teymi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.


Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt áhugasamt fólk til að sækja um óháð kyni.

KPMG Law ehf.

KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG og ein af leiðandi stofunum á sviði fyrirtækjalögfræði á Íslandi. Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og í dag starfa hjá okkur á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og sérfræðinga. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands sem og erlendis sem gerir okkur kleift að veita heildstæða þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviðum lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.

Stafrænar lausnir í lögfræði (Legal Tech) hafa verið ein af lykiláherslum okkar undanfarin ár og verða það áfram til framtíðar.


Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law:

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni með raunveruleg áhrif.
  • Öflug tækifæri til starfsþróunar og samstarfs við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og möguleiki á að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og KPMGfit æfingum.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Stuðningur við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Stuðningsúrræði og styrkur fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.


Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fyllt út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, í [email protected] og Ævar Hrafn Ingólfsson Senior Manager hjá KPMG Law í [email protected]

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar