

Sérfræðingur í skýjarekstri og gervigreind
Advania leitar að öflugum tæknisérfræðingi með reynslu af öruggum rekstri skýjalausna og brennandi áhuga á að nýta gervigreind í rekstri og samþættingu kerfa. Starfið tilheyrir innra upplýsingatækniteymi Advania, sem sér um rekstur og þjónustu skýjalausna og innri upplýsingatæknikerfa fyrir starfsfólk Advania.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Rekstur á skýjaþjónustum eins og ServiceNow, Atlassian, Github, ChatGPT og Claude með áherslu á öryggisstillingar og aðgangsstýringar
-
Reynsla af samþættingum milli skýjaþjónusta, uppsetning, vöktun og bilanagreining
-
Uppsetning, rekstur og vöktun á MCP þjónustum
-
Rekstur á miðlægum auðkenningarkerfum
-
Hönnun og rekstur á Azure App Services, Container Apps/AKS, Functions, Logic Apps, Cowork, Copilot studio
-
Hönnun, uppsetning og rekstur á Datafabric
Eiginleikar sem við leitum að
-
Skilningur og reynsla af öruggri notkun gervigreindar og gagnavinnslu
-
Reynsla af gervigreindarstuddum kóðunartólum
-
Þekking á CI/CD (Azure DevOps, GitHub Actions)
-
Þekking á ITIL ferlum kostur
-
Frumkvæði, jákvætt hugarfar og lausnamiðuð nálgun
-
Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
Menntunar og hæfniskröfur
-
Háskólagráða eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Vottanir í skýjaþjónustum eins og Identity and Access Administrator, Azure Administrator/DevOps Engineer Expert , Auth0 kostur
Enska










