
Hugbúnaðarsérfræðingur
Skræða ehf. þróar og selur hugbúnað, Signal EMOS, sem veitendur heilbrigðisþjónustu reiða sig á í daglegu starfi. Við leitum að lausnasérfræðingi sem setur sig inn í starfsemi viðskiptavina, greinir hvernig kerfið okkar mætir þörfum þeirra og leiðir innleiðingar frá greiningu og þar til verklag og hugbúnaður hafa sameinast.
Starfið krefst heildstæðrar og skipulagðrar nálgunar á vandamálum með víðtækar og fyrirbyggjandi aðgerðir í huga.
-
Greining á klínísku og rekstrarlegu verklagi viðskiptavina og skjölun á þörfum þeirra
-
Uppbygging innviða fyrir starfið með aðgengi annarra starfsmanna og viðskiptavina að nauðsynlegum upplýsingum
-
Gerð innleiðingaáætlana og verkstjórn fram að gangsetningu
-
Stillingar og uppsetning lausna innan kerfisins og framsetning valkosta með kostum og göllum
-
Breytingastjórnun við innleiðingar: kynning, þjálfun og stuðningur við starfsfólk við nýtt verklag
-
Fastur tengiliður tiltekins hóps viðskiptavina
-
Greining vandamála, rakning að mögulegri sameiginlegri/víðtækari orsök til heildræna úrlausna
-
Náið samstarf við hugbúnaðarteymi um úrbætur og tillögur um nýsmíði lausna á grundvelli þarfagreininga hjá viðskiptavinum
-
Dagleg umsýsla: notendur og aðgangsstýringar, Microsoft 365, VPN og dreifing hugbúnaðar
Hæfniskröfur
-
Reynsla af innleiðingum, lausnaráðgjöf, kerfisgreiningu eða sérfræðistörfum tengdum hugbúnaðarkerfum
-
Reynsla af gerð kröfulýsinga, ferlarita eða innleiðingaáætlana er kostur
-
Reynsla af breytingastjórnun og þjálfun notenda
-
Færni í að greina þarfir notenda með takmarkaðan tæknibakgrunn og setja þær fram í skýrum, skriflegum lýsingum
-
Kerfisbundin vinnubrögð við sannprófanir – sýna fram á að lausnir virki umfram það sem prófað var handvirkt.
-
Góð þekking á upplýsingatækni á borð við Windows, Linux, SQL, Active Directory / Entra ID og Microsoft 365
-
Skilningur á grunnatriðum netkerfa (VPN, DNS, eldveggir)
-
Reynsla úr heilbrigðisgeiranum er kostur
-
Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð – þú tekur ábyrgð á og klárar það sem þú tekur að þér.
-
Gott vald á íslensku er skilyrði, auk góðrar enskukunnáttu
-
Tækifæri til að vaxa í starfi og taka á sig aukna ábyrgð
-
Sveigjanlegur vinnutími og möguleiki á fjarvinnu
Enska
Íslenska










