EFLA hf
EFLA hf
EFLA hf

Jarðvarmasérfræðingur

Við viljum styrkja teymið okkar enn frekar og leitum að öflugum sérfræðingi á sviði jarðvarma og orkuvinnslu. Starfið verður unnið þverfaglega milli sviða og teyma innan EFLU og er möguleiki að starfa óháð staðsetningu. Í starfinu munt þú sinna áhugaverðum verkefnum tengdum jarðhita, orkuvinnslu og almennri jarðvarmanýtingu í nánu samstarfi við sérfræðinga í teymi véla á iðnaðarsviði EFLU.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun tengd jarðvarma, orkuvinnslu og hitaveitum
  • Orkuútreikningar
  • Verkefnastýring
  • Ráðgjöf á sviði hönnunar og þjónusta til viðskiptavina
  • Gerð útboðsgagna
  • Gerð kostnaðaráætlana
  • Möguleiki á alþjóðlegum verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði véla-, iðnaðar-, orkuverkfræði eða tæknifræði
  • Reynsla af orku- og/eða iðnaðartengdum verkefnum
  • Kunnátta á Inventor og/eða AutoCAD Plant 3D kostur
  • Vilji til að sérhæfa sig innan starfssviðs
  • Frumkvæði, sjálfstæði og samskiptahæfni
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Færni í samskiptum
  • Kunnátta í ensku og norðurlandamálum er kostur
Fríðindi í starfi
  • Góður og hollur matur í hádeginu
  • Vellíðunarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Hreyfistyrkur
  • Fæðingarstyrkur
  • Gleraugnastyrkur
  • Símastyrkur
  • Símaáskrift og heimatenging
Auglýsing birt29. október 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar