Veitur
Veitur
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis

Vilt þú hafa áhrif á hvernig veitukerfi framtíðarinnar eru mótuð og byggð upp?

Veitur leita að öflugum sérfræðingi með reynslu af dreifikerfum til liðs við Hönnunarstýringu. Deildin ber ábyrgð á að móta og stýra tæknilegum lausnum í fjárfestingarverkefnum Veitna og fylgja þeim eftir frá frumstigi til framkvæmdar og afhendingar.

Starfið felur í sér tæknilega ábyrgð og hönnunarstýringu í verkefnum sem tengjast uppbyggingu, endurnýjun og breytingum á dreifikerfum vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu. Viðkomandi mótar hönnunarforsendur og kröfur, leiðir tæknilega umræðu og fylgir lausnum eftir í gegnum verkefnið.

Starfið kallar á náið samstarf við verkefnastjóra, rekstur, ráðgjafa, sveitarfélög og aðra hagaðila með það að markmiði að réttar forsendur liggi fyrir á réttum tíma og lausnir séu vandaðar, hagkvæmar og rekstrarvænar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bera ábyrgð á tæknilegum lausnum á sínu fagsviði og fylgja þeim eftir í gegnum verkefnið.
  • Móta hönnunarforsendur og tæknilegar kröfur í samstarfi við rekstur og aðra hagaðila.
  • Leiða og samræma tæknileg viðfangsefni í hönnun verkefna.
  • Meta forsendur og áhrif tæknilegra lausna á veitukerfin.
  • Rýna tæknilegar lausnir og hönnunargögn og tryggja að þau styðji markmið verkefnisins.
  • Veita tæknilega ráðgjöf og fylgja tæknilegum atriðum eftir frá undirbúningi til framkvæmdar og afhendingar.
  • Taka þátt í úrlausn frávika og breytinga og stuðla að stöðugum umbótum.
  • Taka þátt í að þróa hönnunarleiðbeiningar, tæknilegar kröfur og staðlaðar lausnir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Víðtæk reynsla af tæknilegum verkefnum sem nýtist í starfinu.
  • Góður tæknilegur skilningur og hæfni til að greina viðfangsefni, sjá heildarmyndina og taka faglega afstöðu.
  • Reynsla af samstarfi þvert á faggreinar og hæfni til að leiða tæknileg viðfangsefni að niðurstöðu.
  • Hæfni til að rýna og samræma vinnu ráðgjafa og annarra samstarfsaðila.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og áhugi á að þróa lausnir og bæta vinnubrögð.
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem verkfræði, tæknifræði, iðnfræði eða sambærilegt nám. Viðeigandi reynsla og sérþekking verður einnig metin.
Hvers vegna Veitur?

Veitur tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Við veitum lífsgæði til framtíðar með nýsköpun, samstarfi og öruggum rekstri. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónusta um 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í forgrunn, leitum stöðugt leiða til að bæta þjónustuna og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.

Fríðindi

  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Aðgangur að Velferðartorgi
  • Fæðingarorlofsstyrkur
  • Aðgangur að líkamsræktarsal
  • Mötuneyti á starfsstöð
  • Fræðslustyrkir
  • Aðgangur að orlofshúsum
  • Góð aðstaða fyrir hjólreiðafólk

Kynntu þér vinnustaðinn nánar á www.veitur.is/vinnustadurinn.

Við leitum að fólki sem sýnir fagmennsku og áreiðanleika, á gott með samskipti og samstarf og leitar stöðugt leiða til að þróa og bæta vinnubrögð.

Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember 2026

Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Jónsdóttir, deildarstjóri Hönnunarstýringar, á netfanginu [email protected].

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.

Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar