Vörustjóri
Viltu hafa áhrif á hvernig innkaup og birgðastýring styðja við öruggan og skilvirkan rekstur Veitna?
Veitur leita að lausnamiðuðum einstaklingi til starfa við innkaup og vörustýringu. Starfið felur í sér innkaup, birgðahald og þjónustu, í nánu samstarfi við birgja og aðra þjónustuaðila.
Í starfinu stuðlar þú að því að vörur og aðföng séu tiltæk þegar á þarf að halda og að innkaup og birgðastýring mæti þörfum starfseminnar. Þú fylgist með birgðum og vöruverði, sinnir samningum við birgja lagervara og mótar tillögur að úrbótum.
- Annast innkaup og taka þátt í að þróa innkaupaþjónustu.
- Góð þekking á innkaupa og birgðakerfum.
- Stýra birgðahaldi, fylgjast með birgðastöðu og greina tækifæri til úrbóta.
- Eiga í samskiptum við lykilaðila, birgja og þjónustuaðila, svo sem vöruhótel og flutningsaðila.
- Fylgjast með og uppfæra vöruverð og vöruskrá.
- Reka samninga við birgja.
- Taka þátt í útboðsmálum og öðrum innkaupatengdum verkefnum.
- Fylgjast með nýjungum á markaði og miðla upplýsingum sem geta nýst starfseminni.
- Reynsla af innkaupum og birgðastýringu.
- Rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
- Hæfni til að greina birgðastöðu og koma auga á tækifæri til úrbóta.
- Gott vald á íslensku og ensku.
- Iðnmenntun er kostur.
Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og reka innviði sem samfélagið treystir á allan sólarhringinn. Við tengjum stóran hluta landsmanna við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.
Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að byggja upp nýja deild og móta hvernig Veitur vinna með eignir, áhættu, viðhald og áreiðanleika næstu árin. Viðkomandi fær að leiða raunverulega breytingu sem á að skila færri bilunum, öruggari þjónustu og markvissari nýtingu tíma og fjármuna.
Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum því að ólík reynsla, þekking og sjónarmið leiði til betri ákvarðana og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði starfsins til að sækja um.
Fríðindi
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Aðgangur að Velferðartorgi
- Fæðingarorlofsstyrkur
- Aðgangur að líkamsræktarsal
- Mötuneyti á starfsstöð
- Fræðslustyrkir
- Aðgangur að orlofshúsum
- Góð aðstaða fyrir hjólreiðafólk
Kynntu þér vinnustaðinn nánar á www.veitur.is/vinnustadurinn.

Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2026. Bára Jónsdóttir, forstöðukona Samninga og aðfangastýringar, á netfanginu [email protected].
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.
Íslenska
Enska