
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ veitir alhliða verkfræðiráðgjöf með áherslu á trausta og faglega þjónustu og hagkvæmar lausnir. Á skrifstofum VSÓ í Reykjavík og í Noregi starfar yfir 90 manna samhentur hópur verkfræðinga og annarra tæknimenntaðra starfsmanna.

Efnaverkfræðingur á sviði umhverfisráðgjafar
Vilt þú stuðla að betri nýtingu auðlinda og minni umhverfisáhrifum? Við leitum að efnaverkfræðingi til starfa á umhverfis- og skipulagssviði.
Um starfið
Sem efnaverkfræðingur í umhverfisráðgjöf munt þú starfa við:
- Mat á umhverfisáhrifum: Mat á áhrifum fjölbreyttra verkefna á umhverfið.
- Umhverfisrannsóknir: Mat á mengun í jarðvegi og vatni, áhættugreiningar og áætlanir um rannsóknir og vöktun.
- Úrgangsmál: Ráðgjöf um meðhöndlun úrgangs, endurvinnslu og betri nýtingu hráefna.
- Starfsleyfi og mengunarvarnir: Undirbúning starfsleyfisumsókna og ráðgjöf um tæknilegar lausnir og umbætur í rekstri.
- Verkefnastjórnun: Umsjón verkefna og samstarf við viðskiptavini, stjórnvöld og sérfræðinga úr ólíkum faggreinum.
Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:
- Menntun: Háskólamenntun í efnaverkfræði.
- Reynsla: Starfsreynsla af iðnaði, umhverfisráðgjöf eða sambærilegum störfum er æskileg.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Samskiptahæfni: Jákvæðni og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
- Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku, bæði töluðu og rituðu máli.
Hvað bjóðum við
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:
- Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
- Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
- Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Líflegt félagsstarf.
Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/
Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Efnaverkfræðingur.
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur7. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSkýrslurTeymisvinnaVinnsla rannsóknargagna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Tækjasérfræðingur – uppsetning, þjónusta og þjálfun
DTE

Field Service Specialist (Service, Build & Enablement)
DTE

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn