

Tæknisérfræðingur
Korda er nýtt sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar sem tók til starfa 1. september síðastliðinn. Félagið sameinar rekstur mikilvægra fjarskipta- og öryggisinnviða landsins til að auka skilvirkni og styrkja rekstraröryggi. Korda annast m.a. rekstur fjarskiptasæstrengja sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-öryggisfjarskiptakerfisins og tæknikerfa sem styðja við starfsemi Neyðarlínunnar og viðbragðsaðila um land allt.
Korda óskar nú eftir reyndum sérfræðingi til að sinna þróun umfangsmikilla fjarskiptakerfa fyrir næstu kynslóð öryggis- og fjarskipta með áherslu á kjarnaeiningar sem munu byggja á farnetstækni. Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í þróun og innleiðingu kerfa sem eru grundvallaratriði fyrir almannaöryggi og gefst tækifæri til að hafa áhrif og móta starfið.
- Þátttaka í framþróun fjarskiptakerfa fyrir almannaöryggi til næstu kynslóðar
- Þáttttaka í samþættingu nýrra fjarskiptakerfa við núverandi kerfi
- Þátttaka í almennri stafrænni þróun og innleiðingu nýjunga í fjarskiptatækni ásamt net- og upplýsingaöryggi og tengingu við gervigreind
- Þátttaka í tæknilegum verkefnum tengdum rekstri fjarskiptakerfa Korda
- Önnur tilfallandi verkefni
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tækni- eða verkfræði
- Reynsla af sambærilegu starfi með áherslu á farnetstækni
- Þekking á uppbyggingu, samþættingu og rekstri stórra fjarskiptakerfa
- Kunnátta á samskiptareglum, högun og öryggi fjarskiptakerfa
- Frumkvæði og áhugi á nýjungum í fjarskiptakerfum og stafrænum lausnum
- Metnaður til að gegna mikilvægu hlutverki í síbreytilegu umhverfi
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í hóp
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna vel undir álagi
- Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska










