Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Hugbúnaðarsérfræðingur

Markaðs- og verðbréfalausnir Íslandsbanka leita að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt starf við rekstur og þróun hugbúnaðar í öflugu og skapandi starfsumhverfi. Við myndum góða liðsheild sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir og vinnur náið með viðskiptaeiningum og öðrum hagsmunaaðilum, jafnt innan sem utan bankans.

Við leggjum áherslu á notendamiðaða þróun, gott samstarf og að skila lausnum sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.

Deildin ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi og áframhaldandi þróun hugbúnaðarlausna fyrir verðbréfa- og markaðsviðskipti Íslandsbanka.

Starfið felur því bæði í sér að tryggja stöðugan og traustan rekstur núverandi lausna og taka þátt í áframhaldandi þróun þeirra. Samhliða rekstrinum eiga sér stað miklar breytingar á þessu sviði, meðal annars með aukinni sjálfvirknivæðingu, endurnýjun lausna og bættu stafrænu aðgengi.

Íslandsbanki er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Tækniumhverfi okkar er nútímalegt og við leggjum ríka áherslu á gæði og áreiðanleika lausna, sjálfvirknivæðingu og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samþætting og rekstur aðkeyptra lausna
  • Villugreining, úrbætur og bestun viðskiptaferla
  • Þátttaka í vöruþróun lausna fyrir stafræna þjónustu ásamt nauðsynlegri innviða uppbyggingu
  • Sjálfvirknivæðing hugbúnaðarferla, afhendinga, prófana og reksturs
  • Önnur verkefni vöruteyma
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lausnamiðuð og gagnrýnin hugsun
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og drifkraftur
  • Hugarfar til að læra á nýja tækni og forritunarmál, úrlausn vandamála og greiningarhæfni.
  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt27. október 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar