Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Laust starf net- og kerfisstjóra á skrifstofu Alþingis

Skrifstofa Alþingis leitar að tæknilega öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi með góða þekkingu og reynslu af kerfisrekstri, afbragðs öryggisvitund og ríka þjónustulund. Verkefni upplýsingatæknideildar felast meðal annars í að tryggja stöðugan rekstur, hámarksafköst og öryggi tæknilausna auk verkefnastýringar á sviði upplýsingatækni.

Hjá upplýsingatæknideild starfar samhent teymi að fjölbreyttum verkefnum þar sem engir tveir dagar eru eins. Ef þú nýtur þess að finna lausnir, miðla þekkingu og vinna í lifandi starfsumhverfi þá er upplýsingatæknideild skrifstofu Alþingis rétti vinnustaðurinn fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur og umsýsla netþjóna
  • Net- og öryggisstjórnun
  • Öryggisafritun og endurheimt
  • Rekstur og bilanagreining innviða
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. kerfisstjórnun, tölvunar- og/eða kerfisfræði eða önnur sambærileg menntun
  • Marktæk reynsla af sambærilegu starfi
  • Marktæk reynsla af rekstri Linux-netþjóna nauðsynleg, einkum Red Hat-umhverfis
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og umbótahugarfar
  • Mjög góð samskiptafærni og reynsla af teymisvinnu
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Auglýsing birt27. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Tölvunarfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar