
Sérfræðingur í þróun gagnalíkana og greiningu gagna
Viltu nýta gögn til að skapa skýrari yfirsýn og styðja við betri ákvarðanir? Við viljum ráða sérfræðing sem hefur áhuga á að þróa gagnalíkön, greina gögn og miðla niðurstöðum á skýran og aðgengilegan hátt.
Í starfinu felst að móta og þróa gagnalíkön sem nýtast til greiningar og upplýsingamiðlunar. Unnið er í samstarfi við sérfræðinga og notendur að því að skilja upplýsingaþarfir, tryggja gæði gagna og gera flóknar upplýsingar aðgengilegar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun, þróun og viðhald gagnalíkana fyrir greiningar og skýrslugerð.
- Úrvinnsla og greining gagna úr ólíkum kerfum og gagnasöfnum.
- Þróun skýrslna og mælaborða sem veita skýra yfirsýn og styðja við ákvarðanatöku.
- Þróun gervigreindarfulltrúa (AI-agenta) og vinna með MCP við tengingu þeirra við gögn og þjónustur.
- Greining á gæðum gagna og þátttaka í umbótum á skráningu, samræmingu og nýtingu þeirra.
- Skilgreining og skjölun mælikvarða, hugtaka og tengsla í gögnum.
- Samstarf við notendur og sérfræðinga um þarfagreiningu og framsetningu niðurstaðna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði, hagfræði eða viðskiptafræði, eða sambærileg þekking og reynsla.
- Reynsla af þróun gagnalíkana og greiningu gagna.
- Góð þekking á SQL og vinnslu gagna úr gagnagrunnum.
- Mjög góð þekking á Power BI, DAX og merkingarlíkönum (semantic models).
- Þekking á MCP og þróun gervigreindarfulltrúa (AI-agenta).
- Hæfni til að greina þarfir og miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, nákvæmni og góð samstarfs- og samskiptahæfni.
- Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Það er kostur að hafa
- Þekkingu á bókhaldi, launum og opinberum innkaupum.
- Reynslu af vinnslu fjárhags-, launa- eða innkaupagagna.
- Þekkingu á gagnavinnslu í Azure.
- Þekkingu á PL/SQL.
- Þekkingu á VS Code, Codex og Claude Code.
- Þekkingu á gagnavöruhúsum, gagnasamþættingu og sjálfvirkni í gagnavinnslu.
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur5. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Fjársýslan

Power Platform & AI Developer
Alvotech hf

SAP Functional Analyst – Manufacturing, Quality & PP/DS
Alvotech hf

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Sérfræðingur í netkerfum
Advania

Software engineer
Rivvo

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Junior Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Back-end Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Front-end Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Sérfræðingur í gagnalausnum
Lífeyrissjóður verzlunarmanna