Fjársýslan
Fjársýslan

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?

Komdu og mótaðu næstu kynslóð AI-lausna hjá Fjársýslunni

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi sem vill breyta góðum hugmyndum í AI-lausnir sem nýtast í raun.

Hjá Fjársýslunni færð þú tækifæri til að þróa og innleiða AI-agenta sem einfalda verkferla, bæta þjónustu og styðja starfsfólk í daglegum störfum. Við vinnum hratt frá hugmynd að prófun og áfram í lausn sem skilar raunverulegu virði.

Starfið er tímabundið til 12-24 mánaða og gert er ráð fyrir ráðningu frá janúar 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hanna, þróa og innleiða AI-agenta fyrir raunveruleg verkefni.
  • Finna tækifæri þar sem gervigreind getur einfaldað vinnu og bætt þjónustu.
  • Tengja AI-lausnir við gögn, þekkingargrunna, kerfi og verkferla.
  • Prófa lausnir, mæla árangur og þróa þær áfram.
  • Tryggja öryggi, persónuvernd og ábyrga notkun gervigreindar.
  • Deila þekkingu og hjálpa til við að koma lausnum í notkun.
  • Fylgjast með þróun AI-agenta og prófa nýjar leiðir.
Menntunar- og hæfniskröfur

Þú þarft ekki að kunna allt. Við leitum fyrst og fremst að einstaklingi sem getur þróað lausnir, er forvitinn, hefur frumkvæði og vill láta hlutina gerast.

Það er mikilvægt að þú hafir:

  • háskólamenntun sem nýtist í starfi,
  • reynslu af hugbúnaðarþróun, samþættingum eða AI-lausnum,
  • þekkingu á stórum mállíkönum, RAG, API og meðhöndlun gagna,
  • þekkingu á SQL og þróunarumhverfi,
  • skilning á persónuvernd, upplýsingaöryggi og aðgangsstýringum,
  • getu til að vinna bæði sjálfstætt og með öðrum,
  • hæfni til að miðla tæknilegum viðfangsefnum skýrt á íslensku og ensku.

Það er plús ef þú þekkir MCP, VS Code, Codex, Claude Code, Microsoft Azure, Microsoft 365 eða Copilot Studio og/eða hefur unnið með TypeScript, C#/.NET eða Go.

Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur5. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar