

Deildarstjóri stafrænnar verðmætasköpunar
Viltu leiða stafræna verðmætasköpun Orku náttúrunnar?
Við leitum að árangursdrifnum leiðtoga til þess að leiða stafræna verðmætasköpun með það að markmiði að bæta rekstrartengdar ákvarðanir, auka skilvirkni og grípa tækifæri til að skapa aukin verðmæti.
Hlutverkið snýr að því að efla okkur enn frekar á sviði viðskiptagreindar, styrkja gagnagreiningar, finna leiðir til að nýta gervigreind og sjálfvirknivæðingu til að styðja við rekstur og nýta stafræna tækni þar sem hún skilar virði.
Við leitum að reynslumiklum leiðtoga sem býr yfir þekkingu af stafrænni verðmætasköpun og skilningi á því hvernig hægt er að umbreyta hugmyndum yfir í stafrænar afurðir sem skila mælanlegum árangri.
Deild Stafrænnar verðmætasköpunar starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og starfsfólk þvert á ON á grunni öflugs samstarfs við svið Hugvits og tækni hjá Orkuveitunni.
Hvað felst í starfinu?
Í hlutverki deildarstjóra leiðir þú öflugt teymi sérfræðinga í fjölbreyttum verkefnum, s.s. á sviði gagnamála, viðskiptagreindar, gagnagreininga, gervigreindar, gagnainnviða og stafrænna lausna.
Þú munt byggja upp markvissa nálgun við að greina stafræn tækifæri, meta mögulegt virði þeirra og forgangsraða verkefnum þannig að tími, fjármagn og sérfræðiþekking nýtist þar sem áhrifin geta orðið mest.
Þú færð jafnframt mikilvægt hlutverk í að efla gagnadrifna starfsemi þvert á fyrirtækið.
- Leiða öflugt teymi sérfræðinga Stafrænnar verðmætasköpunar þar sem fagmennska, frumkvæði, ábyrgð og samstarf eru undirstaða árangurs
- Móta sýn og forgangsröðun ON í stafrænni verðmætasköpun í takt við stefnu og rekstrarmarkmið félagsins
- Vinna þvert á ON að því að greina vandamál og tækifæri þar sem gögn og tækni geta skapað mælanlegt virði og samkeppnisforskot
- Leiða þróun gagnastjórnunar og stuðla að skýru eignarhaldi og markvissri nýtingu gagna
- Efla notkun viðskiptagreindar og gagnagreininga til að bæta yfirsýn, ákvarðanatöku og árangur
- Byggja upp og viðhalda þéttu samstarfi við Hugvit & tækni og tryggja að sameiginleg sérfræðiþekking og tæknileg geta nýtist ON sem best
- Tryggja yfirsýn og markvissa stjórnun verkefnasafns, þar sem verkefnum er forgangsraðað m.t.t. væntra áhrifa, kostnaðar og áhættu
- Vera brúarsmiður milli viðskipta og tækni, móta, greina og forgangsraða stafrænum þörfum ON
Við leitum að manneskju sem býr yfir:
- Reynslu af stafrænni umbreytingu í fyrirtæki eða flóknu rekstrarumhverfi
- Fagþekkingu og góðum skilningi á samspili rekstrar, viðskipta, gagna og tækni, þ.á,m. upplýsingakerfa, samþættinga og stafrænna lausna
- Reynslu af því innleiða breytingar sem snúa að því að nýta viðskiptagreind, gagnagreiningar og gagnadrifnar ákvarðanir
- Góðri þekkingu á möguleikum og takmörkunum gervigreindar, sjálfvirknivæðingar og nýrrar stafrænnar tækni
- Skilningi á ferli stafrænnar þróunar frá viðskiptaþörf og kröfugreiningu yfir í þróun, prófanir, innleiðingu og rekstur
- Skilningi á upplýsingaöryggi, persónuvernd og rekstrarhæfi stafrænna lausna
- Getu til að eiga faglegt samtal við hugbúnaðar-, gagna-, öryggis- og rekstrarsérfræðinga
- Sterkri leiðtogahæfni og reynslu af því að styðja við vöxt öflugra sérfræðinga
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, hugrekki, heiðarleika, frumkvæði og framsýni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.
Íslenska
Enska










