

Full stack forritari | Gervigreind og sjálfvirknivæðing
Viltu taka þátt í að þróa næstu kynslóð stafrænna lausna hjá KPMG?
Við leitum að Full stack forritara sem hefur áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og nýrri tækni. Hjá okkur færð þú tækifæri til að taka þátt í stafrænni þróun KPMG og vinna að lausnum sem einfalda störf, bæta upplifun notenda og skapa raunverulegt virði.
Þú verður hluti af ráðgjafarsviði KPMG og tekur þátt í umfangsmiklu þróunarverkefni þar sem unnið er að því að endurhugsa og sjálfvirknivæða vinnuferla. Starfið felur meðal annars í sér þróun og endurbætur á kerfum, nýtingu gervigreindar og náið samstarf við ólík teymi og sérfræðinga innan KPMG.
Við leitum að einstaklingi með um 3 til 5 ára reynslu af hugbúnaðarþróun sem hefur gaman af því að prófa nýja tækni, takast á við fjölbreytt viðfangsefni og þróa hugmyndir í traustar og notendavænar lausnir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna að þróun nýrrar lausnar fyrir KPMG með áherslu á að endurhugsa og sjálfvirknivæða vinnuferla.
- Hanna, þróa, prófa og viðhalda lausnum í .NET og C#, React og TypescriptÞróa lausnir sem nýta gervigreind og samþættingar við AI-þjónustur og stór mállíkön.
- Þróa samþættingar milli kerfa, þjónusta og gagnagjafa með API-tengingum.
- Vinna með notendum og hagaðilum að þarfagreiningu og umbreyta þörfum í tæknilegar lausnir.
- Stuðla að vandaðri og öruggri hugbúnaðarþróun með áherslu á gæði, prófanir og lausnir sem auðvelt er að viðhalda og þróa áfram.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Um 3-5 ára reynsla af hugbúnaðarþróun.
- Góð þekking og reynsla af .NET og C# og þekkingu á React og Typescript
- Reynsla af þróun vefþjónusta, API-tengingum og samþættingu kerfa.
- Reynsla af AI-forritun, þróun gervigreindarlausna eða samþættingu við AI-þjónustur er mikill kostur.
- Þekking á skýjalausnum, sérstaklega Microsoft Azure, er kostur.
- Reynsla af gagnagrunnum, Git og CI/CD-ferlum er kostur.
- Sterk greiningar- og lausnamiðuð hugsun ásamt metnaði fyrir vönduðum vinnubrögðum.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Frumkvæði, forvitni og áhugi á að prófa nýja tækni og koma hugmyndum í framkvæmd.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Markmiðið er ekki aðeins að þróa kerfi. Við viljum endurhugsa hvernig vinnan er unnin.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Hjá KPMG á Íslandi starfa um 240 einstaklingar á 10 skrifstofum um land allt. Við erum fjölbreyttur hópur með ólíka menntun og reynslu sem vinnur saman að því að skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.Við leggjum áherslu á öfluga starfsþróun, sveigjanleika og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa, deila þekkingu og ná árangri saman.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni með raunveruleg áhrif.
- Öflug tækifæri til starfsþróunar og samstarfs við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og möguleiki á að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og KPMGfit æfingum.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Stuðningur við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Stuðningsúrræði og styrkur fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).Nánari upplýsingar veita Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, í [email protected] og Gauti Marteinsson, verkefnastjóri í stafrænni þróun í [email protected]
Íslenska
Enska










