
Kerfisstjórar – tölvudeild utanríkisráðuneytisins og CERT-IS
Utanríkisráðuneytið leitar að öflugum og lausnamiðuðum kerfisstjórum í fjölbreytt og áhugaverð störf á spennandi tímum í tölvudeild ráðuneytisins og CERT-IS. Um tvö mismunandi störf er að ræða sem kalla á virkt samstarf á milli CERT-IS og tölvudeildar ráðuneytisins. Umsækjendur er beðnir um að tilgreina í umsókn hvort sótt er um annað starfið eða bæði.
Hæfniskröfur fyrir kerfistjóra hjá tölvudeild
Starfið felst í kerfisstýringu og fjölbreyttum verkefnum sem tryggja öruggan rekstur upplýsingakerfa ráðuneytisins. Þar má nefna rekstur netþjóna, sýndarumhverfa og staðar- og víðneta, auk uppsetningar og reksturs skýjaþjónusta. Starfið felur einnig í sér aðstoð við notendur ráðuneytisins í starfsstöðvum þess víðsvegar um heiminn.
- Góð þekking á Microsoft-skýjalausnum og rekstri þeirra áskilin.
- Víðtæk reynsla af kerfisrekstri og góð þekking á rekstri sýndarumhverfa áskilin.
- Reynsla af Windows Server, rekstri netþjóna í skýjaþjónustum og gagnagrunnum er kostur.
Hæfniskröfur fyrir kerfistjóra hjá CERT-IS
Ber ábyrgð á uppsetningu, rekstri og viðhaldi kerfa, uppbyggingu innviða og innleiðingu nýrra lausna. Í því felst m.a. vöktun, afritun og endurreisn, ásamt hönnun verkferla og sjálfvirknivæðingu.
- Reynsla af hönnun og rekstri Linux-umhverfa áskilin.
- Reynsla af sjálfvirknivæðingu kerfisreksturs og uppsetningu innviða.
- Þekking á rekstri gagnagrunna, útgáfustjórnun og sjálfvirkum útgáfuferlum er kostur.
Almennar hæfniskröfur
Í báðum störfum felst þátttaka í umbótaverkefnum og teymisvinnu bæði hjá CERT-IS og tölvudeildar, auk samskipta við þjónustuaðila.
- Menntun á sviði kerfisfræði og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Tæknilegar vottanir á sviði kerfisstjórnunar t.d. frá Microsoft, Linux og netkerfum eru kostur.
- Rík öryggisvitund og skilningur á mikilvægi rekstraröryggis og öryggisferla.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð, frumkvæði og góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
- Viðkomandi þarf að vera íslenskur ríkisborgari og geta staðist öryggisvottun frá Ríkislögreglustjóra við upphaf starfs og meðan á starfi stendur.
Starfshlutfall í báðum störfum er 100%
Utanríkisráðuneytið fer með samskipti Íslands við erlend ríki, hagsmunagæslu, alþjóðasamstarf, þróunarsamvinnu, og verkefni á sviði öryggis- og varnarmála. Hjá utanríkisráðuneytinu starfa um 350 manns þar af rúmlega helmingur á Íslandi. Hinn helmingurinn starfar á sendiskrifstofum Íslands sem eru 27 talsins í 23 löndum. Rík áhersla er lögð á að sendiskrifstofur Íslands séu ætíð starfhæfar. Tölvudeildin þjónustar allar starfseiningar ráðuneytisins og er því í stöðugu samstarfi við stjórnendur bæði erlendis og á Íslandi. CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, starfar undir utanríkisráðuneytinu og gegnir lykilhlutverki við að greina, vakta og bregðast við netógnum og öryggisatvikum á landsvísu. Hlutverk sveitarinnar er að efla netöryggi og ástandsvitund á Íslandi, draga úr áhættu í stafrænu umhverfi og veita stjórnvöldum yfirsýn yfir stöðu netöryggismála.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum fjármála- og efnahagsráðherra við stéttarfélag viðkomandi starfsmanns. Áhugasöm, óháð kyni, eru hvött til að sækja um. Sækja skal um stöðuna með stafrænum hætti á vef starfatorgs, www.starfatorg.is, í gegnum ráðningarkerfið Orra. Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá (hámark 2 bls.) ásamt kynningarbréfi (hámark 1 bls.), bæði á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Umsækjendur sem komast lengra áfram í umsóknarferlinu geta búist við að þurfa að vinna heimaverkefni.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Miðað er við að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eftir að ráðningarferli lýkur. Umsóknir munu gilda í sex mánuði frá birtingu þessara auglýsingar, sbr. ákvæði 3. tölul. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019, með síðari breytingum.
Hlekk á skipulag ráðuneytisins má finna hér: Stjórnarráðið | Skipulag
Starfshlutfall í báðum störfum er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2026
Nánari upplýsingar veitir Sturlaugur Sigurðsson ([email protected])
Íslenska
Enska



