

Hugbúnaðarsérfræðingur
Brennur þú fyrir stafrænum lausnum og langar að slást í hóp með framsýnu og kraftmiklu teymi? Framundan eru spennandi verkefni í metnaðarfullri stafrænni vegferð Isavia og við leitum að rétta aðilanum til að slást í för með okkur. Ef þú ert framsýnn einstaklingur sem hefur hæfni í þróun og forritun hugbúnaðar, býrð að jákvæðu hugarfari, vilt hafa gaman í vinnunni og hefur metnað til að ná árangri, þá erum við að leita að þér!
Hugbúnaðarsérfræðingur mun starfa með öðrum sviðum Isavia og sinna greiningu, hönnun og þróun á snjöllum lausnum sem gera störfin okkar enn snjallari. Starfið heyrir undir Stafræna þróun sem sinnir því hlutverki hjá Isavia að skapa stafrænan vettvang með það að markmiði að hámarka arðsemi Isavia, bæta upplifun farþega og auka skilvirkni rekstursins.
Helstu verkefni
-
Forritun, hönnun og þróun hugbúnaðarlausna fyrir Isavia
-
Uppsetning og viðhald á lausnum í skýjaumhverfi (Azure)
-
Samstarf og stuðningur við hagaðila innan Isavia
-
Þátttaka í þarfagreiningu og innleiðingu á tæknilausnum
-
Tæknilegur stuðningur og þjálfun notenda
Hæfniskröfur
-
Brennandi áhugi á stafrænum lausnum og þróun í gervigreindarmálum
-
Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, eða sambærileg reynsla
-
Víðtæk reynsla af hugbúnaðarþróun, a.m.k.5 ár
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt hugarfar og þjónustulund
-
Áhugi og ástríða fyrir góðu notendaviðmóti
-
Reynsla af GitHub og CI/CD
-
Frumkvæði og metnaður til að kynna sér nýjungar og nýja tækni
-
Skapandi og lausnamiðuð hugsun, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
-
Kunnátta í forritun low-code (Powerapps, Outsystems) og RPA lausna er kostur
-
Þekking á Microsoft APIM er kostur
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Starfsstöð: Hafnarfjörður
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg S. Sigurðardóttir, forstöðumaður Stafrænnar þróunar, [email protected]
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um
Íslenska
Enska










