Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Vaktmaður í APOC

Við leitum að ábyrgum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í APOC, stjórnstöð Keflavíkurflugvallar. APOC gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri flugvallarins og sér um eftirlit, samræmingu og úthlutun mikilvægra innviða til að tryggja örugga og skilvirka starfsemi flugvallarins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er náið með ólíkum rekstraraðilum og starfsfólki flugvallarins. Starfið hentar einstaklingum sem hafa góða yfirsýn, búa yfir sterkri samskiptafærni og hafa áhuga á að vinna í kraftmiklu umhverfi þar sem hraðar ákvarðanir og góð samhæfing skipta máli.

Helstu verkefni

  • Úthlutun loftfarastæða og annarra innviða á Keflavíkurflugvelli
  • Eftirlit og samræming daglegs rekstrar flugvallarins
  • Eftirlit með kerfum, fasteignum og búnaði
  • Samskipti við innri og ytri þjónustuaðila vegna rekstrar flugvallarins
  • Þátttaka í verkefnum sem miða að umbótum og þróun rekstrarferla
  • Stuðningur við skilvirka upplýsingamiðlun milli aðila sem koma að daglegum rekstri

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Góð tækni- og tölvukunnátta
  • Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
  • Hæfni til að vinna undir álagi og forgangsraða verkefnum
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli

Unnið er á dagvöktum samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolbrún Arnardóttir, rekstrarsérfræðingur í APOC, á netfanginu [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu.

Við hvetjum áhugasama einstaklinga, án tillits til kyns, uppruna eða bakgrunns, til að sækja um starfið.

Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur24. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar