Fjarskiptastofa
Fjarskiptastofa
Fjarskiptastofa

Sérfræðingur í fjarskiptatækni og innviðum

Vilt þú móta framtíð fjarskipta á Íslandi?

Hvernig vitum við hvar fjarskiptaþjónusta er í boði og hversu vel hún virkar? Hvernig greinum við fjarskiptatruflanir og metum áfallaþol fjarskiptainnviða? Og hvernig undirbúum við fjarskiptakerfi Íslands fyrir nýja tækni og auknar kröfur um öryggi?

Fjarskiptastofa leitar að tæknisinnuðum, skipulögðum og lausnamiðuðum sérfræðingi á innviðasviði. Þú færð að vinna að fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem tengjast fjarskiptainnviðum Íslands.

Starfið sameinar fjarskiptatækni, gagnagreiningu, verkefnastjórnun, mælingar, vettvangsvinnu og tæknilegt eftirlit. Verkefnin snúa meðal annars að rekstraröryggi, þróun og áfallaþoli fjarskiptainnviða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining og úrvinnsla gagna um fjarskiptainnviði, útbreiðslu, þjónustugæði og uppbyggingu fjarskiptaneta.

  • Verkefnastjórnun og umsjón með verkefnum á sviði fjarskiptainnviða, mælinga og áfallaþols.

  • Þátttaka í tæknilegum mælingum, vettvangsathugunum og úrvinnslu mæligagna.

  • Þátttaka í verkefnum sem snúa að rekstraröryggi, áfallaþoli, gervihnattafjarskiptum og nýrri fjarskiptatækni.

  • Samskipti við fjarskiptafyrirtæki, stjórnvöld og aðra hagaðila ásamt þátttöku í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.

  • Þátttaka í tæknilegu eftirliti, meðal annars skoðunum á fjarskipta- og radíóbúnaði skipa eftir því sem við á.

Hverjum erum við að leita að?

Við leitum að tæknisinnuðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem er forvitinn um hvernig hlutirnir virka. Viðkomandi þarf að geta skipulagt og haldið utan um verkefni, unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði, greint vandamál og lagt til lausnir.

Starfið hentar fólki með fjölbreyttan tæknilegan bakgrunn, til dæmis á sviði fjarskipta, verkfræði, tæknifræði, upplýsingatækni, netkerfa eða rafeindatækni. Ekki er gerð krafa um sérhæfða reynslu af radíómælingum, tíðnimálum eða tæknilegu eftirliti; gert er ráð fyrir að viðkomandi geti byggt upp hluta þeirrar sérþekkingar í starfi.

    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjarskipta, verkfræði, tæknifræði, upplýsingatækni, netkerfa eða rafeindatækni, eða sambærileg menntun. Viðamikil og viðeigandi starfsreynsla getur komið í stað formlegrar menntunar.

    • Góður tæknilegur grunnur, þekking á fjarskiptum, netkerfum eða skyldum tæknisviðum og hæfni til að tileinka sér nýja tækni og aðferðir.

    • Reynsla af gagnavinnslu og gagnagreiningu ásamt færni í Excel eða sambærilegum verkfærum.

    • Hæfni til að skipuleggja, leiða og fylgja verkefnum eftir. Reynsla af verkefnastjórnun eða verkefnaumsjón er kostur.

    • Góð greiningarhæfni, nákvæm og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt, leysa vandamál og koma niðurstöðum skýrt á framfæri.

    • Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að vinna með ólíkum sérfræðingum og hagaðilum.

    • Góð færni í íslensku og ensku.

    • Almenn ökuréttindi eru skilyrði þar sem starfið getur falið í sér vettvangsferðir vegna mælinga, skoðana og annarra verkefna.

    Það er kostur að hafa þekkingu á eða reynslu af

    • Radíókerfum, tíðnimálum, radíómælingum eða útbreiðslu radíómerkja.

    • Fjarskiptakerfum, farnetum eða rekstri fjarskiptainnviða.

    • GIS, kortagögnum eða landupplýsingakerfum.

    • Power BI eða sambærilegum verkfærum til greiningar og framsetningar gagna.

    • SQL, Python eða öðrum leiðum til sjálfvirkni og úrvinnslu gagna.

    • Fjarskipta- og radíóbúnaði skipa, vettvangsathugunum eða tæknilegu eftirliti.

    Fríðindi í starfi

    Frekari upplýsingar um starfið

    Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

    Nánari upplýsingar

    Nánari upplýsingar veitir
    Ólafur Aðalsteinsson - [email protected]

    Sækja um starf á Starfatorgi

    Auglýsing birt10. nóvember 2026
    Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Mjög góð
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Meðalhæfni
    Staðsetning
    Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
    Vinnuumhverfi
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar