

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu á fjölbreyttum vigtarbúnaði og rafbúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.
-
Samsetningu fjölbreyttum vigtarbúnaði og ýmsum rafbúnaði (t.d. iðntölvur, skynjarar og skjáeiningar)
-
Uppsetning á hugbúnaði, stillingar og prófanir ásamt frágangi fyrir útflutning
-
Möguleiki á starfsþróun í sérhæfð verkefni eins og samsetningu á röntgenskynjurum og frumsannprófanir á löggildanlegum vogum
-
Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun (eða haldbær reynsla í faginu)
-
Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
-
Góð enskukunnátta í rituðu máli
-
Mjög góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun
-
Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
-
Góð öryggisvitund, samviskusemi og metnaður
-
Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
-
Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
Íslenska
Enska










