
JBT Marel
JBT Marel er alþjóðlegt fyrirtæki, með starfsemi í öllum álfum og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu hátæknilausna fyrir matvælaiðnað.
Á Íslandi er ein stærsta starfsstöð JBT Marel og hér starfar stór og fjölbreyttur hópur fólks með eitt sameiginlegt markmið - að umbreyta framtíð matvælavinnslu.
Við leggjum mikla áherslu á nýsköpun, samvinnu, framúrskarandi árangur og þjónustulund í samskiptum við hvort annað.
Á heimsvísu starfa um 12.000 manns hjá fyrirtækinu en á Íslandi starfa um 620 manns.

Liðsfélagi í suðu og samsetningu hátæknibúnaðar
JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga til starfa við rafsuðu og samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt smíði úr ryðfríu stáli
- Samsetningu tækja og búnaðar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á rafsuðu (TIG) er skilyrði
- Reynsla af rafsuðu er mikill kostur
- Sveinspróf eða haldbær reynsla í málmiðngreinum (nemar koma til greina)
- Góð íslenskukunnátta og/eða enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun í iðnaði
- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
- Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
- Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
Auglýsing birt30. október 2026
Umsóknarfrestur15. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFrumkvæðiMannleg samskiptiNákvæmniSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (4)



