
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.
Sérfræðingur í siglingaöryggi
Viltu móta framtíð siglingaöryggis?
Siglingasvið Samgöngustofu leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á smíðateikningum og eftirlit með hönnun skipa. Starfið felur í sér þátttöku í alþjóðlegu og innlendu samstarfi um mengunarmál og orkuskipti í skipum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á siglingaöryggi, stafrænni vegferð, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður. Við leggjum áherslu á góða þjálfun og starfsþróun og starfið getur því hentað bæði nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem hafa áhuga á að sérhæfa sig á sviði skipatækni og framtíðarlausna í siglingum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirfara teikningar og önnur hönnunargögn skipa með hliðsjón af gildandi reglum og stöðlum.
- Samskipti og samstarf við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.
- Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.
- Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði orkuskiptamála og mengunarmála siglinga, svo sem hjá IMO og EMSA.
- Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum innan vottaðs gæðakerfis skipadeildar.
- Afgreiðsla erinda, samskipti og þjónusta við viðskiptavini.
- Þátttaka í gerð kennsluefnis og leiðbeininga á sínu sérsviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði eða tæknifræði á skipa- eða vélasviði
- Framhaldsmenntun er kostur.
- Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.
- Þekking á nýorkumálum og mengunarmálum skipa er kostur
- Reynsla af störfum við tæknimál skipa kostur
- Mjög góð tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og frumkvæði og áhugi á að byggja upp sérþekkingu á sviðinu.
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag.
- Góða þjálfun og stuðning við uppbyggingu sérþekkingar.
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi.
- Góðan starfsanda og öflugt teymi sérfræðinga.
Auglýsing birt16. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Production Specialist - Mechanic
DTE

Deildarstjóri fasteigna
Tækniskólinn

Leiðtogi málm- og véltæknigreina
Iðan fræðslusetur

Starfsmaður á framkvæmdasviði Billboard
Billboard og Buzz

Sérfræðingur í fjarskiptatækni og innviðum
Fjarskiptastofa

Fuel effiency and safety specialist
Icelandair

Sérfræðingur í hönnun lagna og loftræsingar
Hnit Artelia

Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Landsnet hf.

Verkefnastjóri, gæðatrygging (Quality Assurance Project Manager)
Ísteka

Sérfræðingur, gæðatrygging (Quality Assurance Specialist)
Ísteka

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab
Textílmiðstöð Íslands

Sérfræðingur í teymi þróunar og auðlinda jarðvarma
Landsvirkjun