Textílmiðstöð Íslands
Textílmiðstöð Íslands
Textílmiðstöð Íslands

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab

Um er að ræða spennandi starf í stafrænni textílsmiðju sem snýst um nýsköpun, tækni og hringrásarhagkerfi í textílvinnslu.Textílmiðstöð Íslands er þekkingarsetur og sköpunaver staðsett á Blönduósi.

Mikil áhersla er lögð á uppbyggingu rannsóknainnviða í textíl með áherslu á stafræna tækni, umhverfisvæna hönnun og endurvinnslu textílúrgangs. Einnig nýtingu innlends hráefnis, varðveislu og eflingu hefðbundinnar handverkskunnáttu.



Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð í samstarfi við umsjónarmann TextílLabsins:

  • Umsjón með rýminu: Daglegur rekstur, viðhald, þrif og umsjón með  stafrænum tækjabúnaði með áherslu á leiserskera og þrívíddarprentun.  Í  umsjón starfsfólks eru jafnframt tæki tengd vefnaði, prjóni, útsaum og þæfingu. 

  • Leiðbeining og kennsla: Taka á móti einstaklingum, hópum og nemendum, veita tæknilega aðstoð og halda reglulega námskeið á tækin.

  • Stuðningur við nýsköpun: Aðstoða frumkvöðla, listafólk og sprotafyrirtæki við útfærslu verkefna og þróun á vörum.

  • Samstarf: Þátttaka í innlendum og alþjóðlegum samstarfsverkefnum tengdum Textílmiðstöðinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi með:

  • Brennandi áhuga á textíl, nýsköpun, tækni og umhverfismálum.

  • Tæknimenntun eða önnur  menntun sem nýtist í stafrænni smiðju.

  • Ríka samskiptahæfni og getu til að leiðbeina fjölbreyttum hópum. 

Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur18. desember 2026
Laun (á mánuði)650.000 - 750.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverbraut 1, 540 Blönduós
Árbraut 31, 540 Blönduós
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar