Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps

Reykhólahreppur auglýsir eftir að ráða öflugan einstakling í teymi áhaldahúss. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir drifkrafti, samskiptafærni, með gott verkvit og er sjálfstæður í vinnubrögðum. Starfið er mjög fjölbreytt og viðkomandi verður hluti af viðhaldsteymi sem sinnir fasteignum og innviðum sveitarfélagsins og öðrum tilfallandi verkefnum. Starfið heyri undir framkvæmdasvið og næsti yfirmaður er umsjónarmaður fasteigna. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almennt viðhald á fasteignum og innviðum sveitarfélagsins

Vinna við hafnar-, vatns- og fráveitumannvirki

Umhirða og fegrun bæjarins, s.s. sláttur, gróðursetning og hellulagnir

Störf á endurvinnslusvæði sveitarfélagsins

Ýmis viðhaldsþjónusta við stofnanir sveitarfélagsins

Vetrarþjónusta á stígum og við stofnanir sveitafélags

Önnur tilfallandi verkefni í samráði við umsjónarmann fasteigna

Menntunar- og hæfniskröfur

Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða reynsla af sambærilegum verkefnum

Geta til að vinna í teymi og sjálfstætt

Fagleg vinnubrögð

Þjónustulund, heiðarleiki og færni í mannlegum samskiptum

Almenn tölvukunnátta

Ökuréttindi skilyrði

Vinnuvélaréttindi og aukin ökuréttindi kostur

Fríðindi í starfi

Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.

Um Reykhólahrepp

Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Þar er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, frístund barna og félagsmiðstöð, hjúkrunar- og dvalarheimili Barmahlíðar, sundlaug, tjaldsvæði, íþróttahús og líkamsrækt, heilsugæsla, Báta- og hlunnindasýning og verslun og veitingasala Bakkabúðarinnar auk ýmissar annarrar þjónustu. Þar starfa Þörungaverksmiðjan hf. og saltverksmiðja Norður & Co ehf. Hótel og veitingastaður er einnig rekið í nágrenni Reykhóla í Bjarkalundi og framundan eru spennandi og áhugaverðir tímar í uppbyggingu og atvinnuþróun sveitarfélagsins á kjörtímabilinu, t.d. á Króksfjarðarnesi, í Garpsdal og í uppbyggingu ferðaþjónustu um sveitarfélagið.

Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur27. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Maríutröð 5A, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar