
atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum. Á árinu 2024 verða tvö ný gagnver tekin í notkun í Finnlandi og Danmörku. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.
RAFVIRKI / RAFMAGNSSÉRFRÆÐINGUR
atNorth er í áframhaldandi vexti á Akureyri og leitar að rafvirkjum eða rafmagnssérfræðingum sem vilja taka þátt í uppbyggingu og rekstri öflugra gagnavera.
Við kunnum að meta góða liðsfélaga sem eru áhugasamir um að læra og vaxa í heimi gagnavera og gervigreindar.
Áreiðanleg rafkerfi eru mikilvægur hlekkur í starfsemi gagnavera okkar og mikilvægt að uppsetning þeirra, viðhald og rekstur séu með skilvirkum og öruggum hætti.
Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinna viðhaldi, breytingum og uppsetningu á búnaði og tæknikerfum gagnaversins
- Annast rekstur, eftirlit og viðhald rafbúnaðar og annarra tæknilegra stoðkerfa
- Framkvæma fyrirbyggjandi viðhald og reglubundnar prófanir samkvæmt viðhaldsáætlunum og verklagsreglum
- Greina bilanir, annast bilanaleit og viðgerðir á raf- og stoðkerfum gagnaversins
- Veita tæknilegan stuðning við framkvæmdir, breytingaverkefni og daglegan rekstur
- Taka þátt í gangsetningu, prófunum og afhendingu nýrra kerfa og búnaðar
- Stuðla að öruggum vinnubrögðum og taka virkan þátt í umbótum á verkferlum og vinnulagi
- Veita viðskiptavinum faglega og skilvirka þjónustu og vinna úr tæknilegum beiðnum
- Sinna öðrum verkefnum í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í rafvirkjun, önnur tengd framhaldsmenntun kostur
- Þekking og reynsla af lágspennu
- Víðtæk þekking á virkni rafkerfa og búnaðar
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
- Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
- Umbótahugarfar, örygggisvitund og þjónustulund
- Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt6. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður / Maintenance Technician
Alvotech hf

Rafvirki eða rafvirkjanemi með reynslu
Rafsveinn ehf

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Electrical Designer
Borealis Data Center ehf.

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
JBT Marel

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.

Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði
Ljósameistarinn ehf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Commissioning Manager
atNorth

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.