
Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði
Vegna aukinna umsvifa og áframhaldandi stækkunar leitum við hjá Ljósameistaranum að öflugum og fjölhæfum starfsmanni á verkstæðið okkar!
Starfið felst fyrst og fremst í uppsetningu á ljósum, rafbúnaði og öðrum aukahlutum í bíla.
🔧 Helstu verkefni
-
Uppsetning á ljósum, rafbúnaði og öðrum aukahlutum í bíla.
-
3D hönnun og teikning hluta til þrívíddarprentunar, ef þekking er til staðar.
-
Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina eftir þörfum.
🙋 Við leitum að einstaklingi sem
-
Hefur góða þekkingu á bílum og rafkerfum þeirra.
-
Er handlaginn, vandvirkur og lausnamiðaður.
-
Getur unnið sjálfstætt og sýnir frumkvæði.
-
Hefur góða þjónustulund og á auðvelt með samskipti.
-
Hefur þekkingu á 3D hönnun og þrívíddarprentun (kostur, en ekki skilyrði).
⭐ Við bjóðum
-
Fjölbreytt og spennandi 100% starf í ört vaxandi fyrirtæki.
-
Góða vinnuaðstöðu og fjölbreytt verkefni.
-
Skemmtilegt starfsumhverfi og öflugan starfsanda.
-
Tækifæri til að þróast í starfi og taka aukna ábyrgð.
📍 Starfsstöð: Eldshöfði 16, Reykjavík
📩 Umsóknir berist í gegnum Alfreð og fyrirspurnir á: [email protected]
Áhugasamir sendi stutta kynningu á sér og fyrri starfsreynslu.
Þekkir þú rétta einstaklinginn? Endilega deildu auglýsingunni!
Íslenska










